Bíó og sjónvarp

Sagður vera næsti James Bond

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Aaron Taylor-Johnson er næsti James Bond ef marka má breska miðla.
Aaron Taylor-Johnson er næsti James Bond ef marka má breska miðla. Aldara Zarraoa/Getty Images

Breski leikarinn Aaron Taylor-Johnson er sagður hafa verið valinn til þess að taka við af Daniel Craig í hlutverki njósnara hans hátignar, James Bond. Þetta kemur fram í umfjöllun Sky fréttastofunnar þar sem segir þó að leikarinn hafi enn ekki samþykkt boðið.

Leikarinn er þekktastur fyrir hlutverk sitt í kvikmyndum líkt og Kick-Ass og Avengers:Age of Ultron. Báðar eru ofurhetjumyndir. Þá er hann jafnframt með aðalhlutverkið í kvikmyndinni Kraven sem væntanleg er á árinu og fjallar um samnefnt illmenni úr heimi Kóngulóarmannsins. Hann er 33 ára gamall og hefur áður sagst vera spenntur fyrir tilhugsuninni um að leika njósnarann.

Daniel Craig lék njósnarann í síðustu fimm kvikmyndum. Þeirri fyrstu árið 2006, Casino Royale. Sú síðasta kom út árið 2021 og hét No Time to Die. Ljóst var eftir þá síðustu að hann myndi ekki endurtaka leikinn í hlutverki þessa frægasta njósnara í heimi.

Breska Sky fréttastofan fullyrðir að boð um að leika njósnarann sé á borðinu hjá Aaron Taylor-Johnson. Verið sé að vinna að undirbúningi hans fyrstu myndar en fullyrt er að allar líkur séu á því að hann muni skrifa undir samning og taka að sér hlutverkið. Hann verður því að öllum líkindum sjöundi leikarinn til að taka að sér hlutverk Bond.

Áður höfðu margir talið að breski leikarinn, hinn 51 árs gamli Idris Elba myndi hreppa hlutverkið. Hann sagði í september síðastliðinn að það kæmi hinsvegar ekki til greina, vegna ógeðfelldra ummæla á netinu um húðlit hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.