Áhorfendur klöppuðu vel fyrir Halep og kyrjuðu nafn hennar en hún komst inn á mótið á boðsmiða (e. wild card) eftir að banni hennar lauk. Hún varð hins vegar að sætta sig við tap fyrir hinni spænsku Paulu Badosa eftir sigur í fyrstu lotu; 1-6, 6-4 og 6-3.
Caroline Wozniacki, efsta kona heimslistans, er hins vegar alls ekki hrifin af því að Halep hafi strax verið hleypt inn á mót eftir bannið.
Eigi ekki að fá frían boðsmiða eftir svindl
„Ég hef verið óhrædd við að tala um það í gegnum tíðina hvað mér finnst um ólöglega lyfjanotkun og allt það. Ég hef alltaf viljað að íþróttin sé hrein, og sanngjörn fyrir alla. Það er enn mín sannfæring,“ sagði Wozniacki og bætti við:
„Þetta snýst ekki beint um Simonu, en ef einhver svindlar vísvitandi, ef einhver hefur fallið á lyfjaprófi, þá er það mín sannfæring að það fólk eigi ekki að fá frían boðsmiða á mót eftir það.
Ef þú vilt snúa aftur, og gerðir mistök, þá skil ég það en þú þarft þá að vinna þig upp frá botninum.“
Caroline Wozniacki disagrees with wild cards for players coming back from doping suspensions. "If you want to come back, and it's been a mistake, I understand, you should work your way up from the bottom."
— José Morgado (@josemorgado) March 20, 2024
Halep reacted to that. "Yeah, but why? I didn't do anything wrong. I pic.twitter.com/FTgdY2fkbT
Fjögurra ára bann stytt í níu mánuði
Halep, sem unnið hefur tvö risamót á ferlinum, fékk boðsmiða á Miami Open eftir að fjögurra ára bann hennar var stytt niður í níu mánuði af Alþjóða íþróttadómstólnum (CAS).
Halep var sett í bann í október 2022 eftir að roxadustat fannst í blóði hennar, í lyfjaprófi eftir U.S. Open, en það er ólöglegt lyf sem örvar framleiðslu rauðra blóðkorna.
„Ég er ekki svindlari“
Halep neitar sök og tók til varna eftir ummæli Wozniacki:
„Ég gerði ekkert rangt. Ég svindlaði ekki. Ég dópaði ekki. Það væri betra ef við skoðuðum niðurstöðu CAS um að þetta voru menguð fæðubótarefni. Ég hef aldrei neytt ólöglegra lyfja, svo ég er ekki svindlari,“ sagði Halep.
„Ég þakka mótshöldurum fyrir að hafa boðið mér á mótið og veitt mér tækifæri til að spila á svona stóru móti. Það var frábært að snúa aftur,“ sagði Halep og beindi svo spjótum sínum að Wozniacki:
„Það er bara ein manneskja neikvæð gagnvart mér og það er ekki mikilvægt því hundruð manns hafa veitt mér ást og það er það sem ég tek úr þessu.“