Skoðun

Fíknisjúkdómar

Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Fíknisjúkdómar eru algjört helvíti. Allt of margir glíma við fíkn sem dregur því miður marga til dauða og sjúkdómurinn rýrir verulega lífsgæði fólks sem við sjúkdóminn glímir. Auk þess hafa fíknisjúkdómar mikil áhrif á aðstandendur sjúklinga og kosta samfélagið allt verulega fjármuni. Fíknisjúkdómar eru flóknir en nauðsynlegt er að nálgast þá eins og aðra langvinna sjúkdóma með gagnreyndri þekkingu og viðurkenndum meðferðum. Vegna þess hve fíknisjúkdómar eru á breiðu sviði kallar lausn þeirra á fjölþætta nálgun, úrræði og meðferðir.

Hingað til virðist umræðan um fíknisjúkdóma of oft einkennast af því að við ættum að veita fleiri milljónum til SÁÁ. Hér verður ekki efast um að SÁÁ gæti nýtt meiri fjármuni og þannig vonandi hjálpað fleirum að takast á við fíknisjúkdóma, sem vissulega er gríðarlega mikilvægur liður í baráttunni. En auknar fjárveitingar til SÁÁ getur ekki verið okkar eina stefna í málaflokknum. Við þurfum heildstæða stefnu um það hvernig takast eigi á við þennan alvarlega sjúkdóm. Þar þarf ráðuneyti heilbrigðismála að vera í leiðandi hlutverki og því hlutverki er ekki hægt að útvista. En í kjölfarið eiga Sjúkratryggingar svo að kaupa viðeigandi þjónustu frá fyrirtækjum og stofnunum sem bjóða þjónustu sem er viðurkennd og skilar árangri í baráttunni við sjúkdóminn.

Ég fagna því að heilbrigðisráðherra hafi nú skipað starfshóp til að uppfæra heildarstefnu í áfengis- og vímuvörnum. Starfshópurinn skal í störfum sínum hafa hliðsjón af vísindum, gagnreyndri þekkingu, klínískum leiðbeiningum og alþjóðlegum stöðlum. Jafnframt er gert ráð fyrir því að stefnan taki mið af mismunandi þörfum hópa m.t.t. meðferðar við fíknisjúkdómum, s.s. ungmenna, kvenna, aldraðra, hinsegin fólks og einstaklinga með alvarlegan langvinnan fíknivanda. Þess er jafnframt vænst að starfshópurinn geri tillögur að aðgerðum til að framkvæma stefnuna ásamt kostnaðaráætlun.

Ég ber væntingar til þessar vinnu og vona að hún færi okkur til betri vegar í að takast á við fíknivanda. Ég vil jafnframt leggja það til að Sjúkratryggingum verði gert að greiða fyrir meðferðarúrræði sem boðið er upp á erlendis svo lengi sem þau uppfylla viðeigandi gæðaskilyrði eins og klínískar leiðbeiningar munu gera ráð fyrir. Sumir þurfa einfaldlega á því að halda að komast í annað umhverfi til að ná bata. Með þessu myndum við geta boðið upp á fleiri úrræði og mögulega aukið samkeppni og bætt þjónustu við þann viðkvæma hóp sem fíknisjúklingar eru.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefnd.




Skoðun

Skoðun

BRCA

Elín Íris Fanndal Jónasdóttir skrifar

Sjá meira


×