Lúðu crudo
„Þessi réttur hefur slegið í gegn hér á OTO og deili ég leyndarmálinu á bak við réttinn hér,“ segir Siggi.
Hráefni:
Lúða
50/50 salt/sykur
2 stk. Sítrónur. Notið börkinn.
Aðferð:
Lúðan er hreinsuð og sítrónu börkur rifinn yfir. Fiskurinn er grafin í vel af saltlegi í 2 klst. Skoluð, þerruð og látin taka sig inn á kæli helst yfir nótt.
Umeboshi vinaigrette
Hér er í lagi að láta hugmyndaflugið ráða ferðum og gera sitt eigið síróp. T.d. rabarbara, rifsberja, hindberja eða jarðaberja.
Hráefni:
200g. Umeboshi sýróp (gerjað plómu og hansarósa sýróp) 2 partur vökvi. 1 partur sykur)
25g. Yuzu safi
25g. Sítrónusafi
75g. Ólífuolía
25g. Repjuolía
25g. Hrísgrjóna edik
30g. Soy (við notum sveppa soy)
Aðferð:
Öllu hrært saman og bragðbætt með salti.
Samsetning:
Fiskurinn er þunnt skorinn og lagður á disk ásamt þunn skornum radísum og perum toppað með jurtum að eigin vali (við notum morgunfrú frá vaxa) og umeboshi vinaigrette helt yfir.
Tagliatelle- Salsiccia frá Tariello
Hér er tilvalið að gera sitt eigið pasta deig, ef ekki þá má alltaf notast við tilbúið tagliatelle.
Hráefni:
Tagliatelle - salsiccia, salvía, eggjarauða, valhnetur.
1200g. Salsiccia (fæst t.d. Í Melabúðinni)
400g.Toppkál
200g. Laukur
30g. Hvítlaukur
9g. rósmarín
6g. salvía
500 ml. þurrt hvítvín
Aðferð:
Toppkál er skorið niður og steikt í pönnu við háan hita
Steikið lauka í potti upp úr smjöri. Bætið svo við salsiccia sem búið er að að hakka niður, léttsteikið.
Bætið við salvíu, rósmaríni og hvítvíni, sjóðið þangað til að hvítvín er gufað upp, sitjið toppkál út í og smakkið til með salt og svörtum ný möluðum pipar.
Smjörsósa -grunnur
250g. skarlottu laukur
5 stk. svört piparkorn
400g. hvítvín
Laukur skorinn niður, allt sett í pott og soðið vel niður. Sigtað og vökvi geymdur.
Sósa
Hráefni:
50g. Niðursoðið hvítvín
50g. Rjómi
250g. Smjör - Skorið í teninga
10g. Balsamico
2g. salt
Aðferð:
Soðið er upp á rjóma, hvítvíni og balsamico, stofu heitu smjöri er hrært saman við vökvan. Útkoman á að vera líkt og beurre blanc sósa. Smakkið til með salti.
Sjóðið pasta. Setjið salsiccia blöndu saman við soðið pasta, blandið sósu saman við, kryddið til og setjið í skál. Parmesan rifinn yfir ásamt hægeldaðari eggjarauðu, basil og karmelliseruðum valhnetum.
Tiramisu
Eftirréttur sem klikkar seint, á vel við öll tilefni og er auðvelt að gera. Eftirrétturinn á myndinni er hið vinsæla pistasíu tiramisu á OTO. Uppskriftin hér að neðan er örlítið einfaldari og klassískari svo alls gangi smurt fyrir sig í eldhúsinu heima fyrir.
Hráefni:
1170g. Mascarpone
150g. Flórsykur
250g. Rjómi
9 stk. Eggjarauður
1 stk. vanillustöng
2 pakkar savoiardi (lady fingers)
1 l kaffi
50g. Amaretto (Má sleppa)
Aferð:
Þeytið egg, flórsykri og vanillukornum saman í hrærivél.
Mascarpone bætt við. Hrærið þangað til að allir klumpar eru farnir, passið að ofþeyta ekki mascarpone samt sem áður.
Næst er létt þeyttum rjóma blandað saman við.
Savoiardi er dýft ofan í kaffi blöndu og raðað í ílát, mascarpone smurt yfir, annað lag af savoiardi sett yfir og svo rest af mascarpone blöndu smurt yfir.
Látið taka sig inn á kæli yfir nótt.
Sigtið kakói yfir áður en borið er fram.