Þetta er meðal þess sem fram kemur í uppfærðu mati Veðurstofu Íslands vegna eldgossins sem hófst fyrir rúmum tveimur vikum síðan milli Hagafells og Stóra Skógfells á Reykjanesi. Þetta er fjórða eldgosið á jafnmörgum mánuðum og það er þegar orðið mun langlífara en hin þrjú.
Tveir gígar eru nú virkir. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga. Viðvarandi hætta er vegna gróðurelda í kringum hraunbreiðuna á meðan þurrt er í veðri. Að þessu sinni berst gasmengun til suðvesturs og síðar til vesturs. Verður hennar líklega vart öðru hvoru í Grindavík og jafn vel í Höfnum. Austan og suðaustanátt verður á morgun, þrír til tíu metrar á sekúndu og gasmengun berst því til vesturs og norðvesturs og gæti mælst víða á vesturhluta Reykjaness, þar á meðal í Reykjanesbæ.
Eins og fram hefur komið á Vísi í dag er gosórói áfram stöðugur. Sérfræðingar Landmælinga Íslands hafa unnið úr gervitunglagögnum frá 27. mars sem sýna að hraunbreiðan var þá 5,99 ferkílómetrar og rúmmál hrauns frá upphafi gossins 25.7 ± 1.9 milljón ferkílómetrar.
Meðalflæði hrauns frá gígunum á tímabilinu 20. - 27. mars var metið 7.8 ± 0.7 ferkílómetrar á sekúndu en það er mjög sambærilegt við hraunflæðið í fyrsta fasa eldgossins í Geldingadölum 2021. Stefnt er að því að taka loftmyndir af svæðinu á næstu dögum til að fá uppfærðar tölur um hraunflæði frá 27. mars sem myndu varpa skýrara ljósi á virkni gossins.
Hættumat hefur verið uppfært og gildir frá kl: 15:00 í dag þangað til 9. apríl, að öllu óbreyttu. Engar breytingar eru á hættumatinu og áfram er hætta af völdum gasmengunar metin mikil á öllum svæðum nema Sundhnúksgígaröðinni (svæði 3) þar sem hún er metin mjög mikil. Hætta á svæði 4 (Grindavík) og svæði 6 eru áfram metin mikil vegna jarðfalls ofan í sprungu, sprunguhreyfinga, hraunflæðis og gasmengunar.
