Innlent

Björgunar­sveit kölluð út vegna snjóflóðs við Dal­vík

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Snjóflóðið féll í Dýjadal.
Snjóflóðið féll í Dýjadal. Vísir

Snjóflóð féll í Dýjadal við Dalvík skömmu eftir hádegi. Björgunarsveit var kölluð út en ekkert bendir til þess að fólk hafi orðið undir flóði. Til stóð að kalla út þyrlu Landhelgisgæslunnar en útkall hennar var afturkallað.

Þetta staðfestir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Vísi. Hann segir viðbragðsaðila fyrst hafa unnið út frá því að einhver hafi orðið undir flóðinu. Ljóst sé hinsvegar að svo sé ekki og ekkert bendi til þess að svo hafi verið.

Viðbragsaðilar fengu tilkynningu frá aðila sem varð vitni að flóðinu. Töluverð snjóflóðahætta er á svæðinu líkt og í flestum landshlutum undanfarnar vikur.

Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar staðfesti í samtali við Vísi að þyrla gæslunnar hafi upprunalega verið kölluð út vegna málsins. Þar áttu að vera björgunarsveitarmenn innanborðs en útkallið hefur verið afturkallað.

Hópur vélsleðamanna sett flóðið af stað

Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra að klukkan 13:00 í dag hafi lögreglunni borist tilkynning um að snjóflóð hefði fallið á Böggvisstaðadal ofan Dalvíkur. Talið var í fyrstu að nokkrir vélsleðamenn hefðu mögulega lent í flóðinu og var því allt viðbragð í Eyjafirði virkjað og því stefnt á svæðið sem og þyrlu LHG. Aðgerðastjórn var virkjuð á Akureyri sem og Samhæfingastöðin í Reykjavík.

Þegar fyrstu viðbragðsaðilar voru komnir inn á Böggvisstaðadal náðist yfirsýn um stöðuna og kom þá í ljós að hópur vélsleðamanna hafði líklega sett stórt snjóflóð af stað í Dýjadal, sem er inn af Böggvisstaðadal, en enginn þeirra lent í flóðinu. Hópur fólks á skíðum, sem hafði verið í nágrenninu og tilkynnt um flóðið, var einnig óhult.

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×