Þetta segir í skriflegu svari Ölmu við fyrirspurn fréttastofu.
Landlæknir sagðist í samtali við fjölmiðla í lok febrúar síðastliðinn að hún væri að „íhuga að íhuga framboð“ til forseta þar sem fjölmargir hafi komið að máli við sig. Sagði hún að bæði fólk sem hún þekkti og þekkti ekki hafi hvatt hana til framboðs. „Þegar fólk hefur haft samband þá leiðir maður hugann óhjákvæmilega að málinu,“ sagði Alma í febrúar.
Í skriflegu svari Ölmu segir hún að þær hugleiðingar hafi þó ekki farið lengra en það og muni heldur ekki gera það.
„Ég hef þannig aldrei sagst vera að íhuga framboð eða „liggja undir feldi“ en vil nota tækifærið og þakka þann mikla heiður og traust sem það er að vera nefnd í þessu sambandi,“ segir í svari Ölmu.