Neitar að gefast upp en bætir líklega ekki við glæsta ferilskrá Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. apríl 2024 07:00 Mættur til að sjá og sigra. EPA-EFE/ERIK S. LESSER Tiger Woods verður meðal kylfinga sem tekur þátt á hinu fornfræga Mastersmóti í golfi sem fram fer á Augusta-vellinum frá 11. til 14. apríl næstkomandi. Woods hefur fimm sinnum farið með sigur af hólmi en það verður að teljast ólíklegt nú.
Þrátt fyrir að vera aðeins 48 ára eru bestu dagar Tiger að baki en á sínum tíma var hann óumdeilanlega besti kylfingur heims. Hann hefur undanfarin ár glímt við gríðarlega erfið bakmeiðsli og í kjölfarið verkjalyfjafíkn tengdum meiðslunum. Þá lenti hann í alvarlegu bílslysi árið 2021 sem hann var heppinn að sleppa lifandi frá. Woods tekur hins vegar þátt í ár og hefur varið heldur nýstárlegar leiðir til þess að vera upp á sitt besta. Þegar Tiger hefur leik í ár verður það í 26. sinn sem hann tekur þátt á Mastersmótinu í golfi. Hann hefur ekki spilað síðan í febrúar á þessu ári en stefnir á að endurtaka leikinn frá því 2019 þegar hann kom öllum að óvörum og sigraði mótið. Var það 15. risamótið sem Woods vann á annars glæstum ferli sínum en fara þurfti aftur til 2008 til að finna síðasta sigur Woods á risamóti. Eftir að fara með sigur af hólmi á Opna bandaríska það árið þá barðist Woods við bakmeiðsli, verkjalyfjafíkn sem og ýmis vandamál í einkalífinu. Hann sneri til baka tímabilið 2012-13, sigraði átta PGA-mót og lyfti sér aftur á topp heimslistans. Það var svo 2017 sem hann fór í fjórðu aðgerðina á baki og eftir það var alls óvíst hvort hann gæti einhvern tímann keppt aftur á hæsta stigi, hvað þá barist um titla. Aðeins ári síðar var hann mættur í harða barátta um titilinn á PGA-meistaramótinu og svo á Augusta-vellinum 2019 gerði hann hið ómögulega. Nú fimm árum síðar vonast hann til að endurtaka leikinn og vinna það sem yrði án efa hans stærsti sigur á ferlinum. Mótið verður í beinni á Stöð 2 Sport 4. Útsending frá fyrsta degi hefst klukkan 18.30 á fimmtudaginn. Daginn áður verður sýnt frá Par 3 keppninni en útsendingin frá henni hefst klukkan 18.30 á miðvikudaginn.
Golf Masters-mótið Tengdar fréttir Tiger Woods verður meðal kylfinga á Masters Tiger Woods hefur þegið boð um að keppa á Masters sem fer fram í byrjun næsta mánaðar. 21. mars 2024 07:00 Tiger þurfti vökva í æð og hætti keppni á miðjum hring Endurkomu Tiger Woods á PGA-mótaröðina í golfi var beðið með töluverðri endurvæntingu en á fimmtudagskvöld var hann mættur til leiks á mótaröðinni í fyrsta sinn síðan í apríl á síðasta ári. 17. febrúar 2024 09:28 Tiger Woods segist vera verkjalaus Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er að fara að taka þátt í sínu fyrsta golfmóti síðan í desember. Hann keppir á Genesis Invitational mótinu sem hefst í dag. 15. febrúar 2024 16:30 Tiger Woods telur sig enn geta unnið PGA mót Tiger Woods hefur hægt og rólega snúið aftur á golfvöllinn eftir að hann slasaðist í bílslysi fyrir nær þremur árum. Hann stefnir á að taka þátt í PGA móti í hverjum mánuði árið 2024. 18. desember 2023 21:30 Mest lesið Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Golf Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Golf „Getur ennþá orðið stórkostlegt tímabil“ Fótbolti Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Heimsleikarnir gætu byrjað klukkan sex um morguninn Sport Frakkar í mál og vesen hjá Chelsea vegna rasískra söngva Argentínumanna Enski boltinn Como viðurkennir að leikmaður liðsins hafi kallað Hwang Jackie Chan Enski boltinn McIlroy hunsaði Tiger óvart í mánuð Sport Neville vill enskan þjálfara fyrir landsliðið Enski boltinn Miklar væntingarnar til íslenska landsliðsins réttlætanlegar Handbolti Fleiri fréttir Tiger svaf ekki eftir morðtilræðið gegn Trump Einn sá skrautlegasti mættur á Opna breska Ótrúleg hola í höggi: Meira en hálfa mínútu að fara niður Íslenska karlalandsliðið í golfi í deild þeirra bestu Sturluðust allir úr gleði þegar myndband náðist af Ágústi fara holu í höggi Keegan Bradley útnefndur fyrirliði eftir að Tiger Woods sagði nei takk Missir af milljónum af því að hann er ekki atvinnumaður Tiger sagður hafa afþakkað fyrirliðastöðuna Sú besta í heimi bitin af hundi Fór holu í höggi á tveimur holum í röð Rahm brjálaður: „Djöfulsins drónar“ Tiger Woods fær lífstíðarpassa fyrir afrek sín Nýkrýndur meistari á Opna bandaríska: „Pirraður og vonsvikinn“ McIlroy tekur sér í frí frá golfi eftir „erfiðasta daginn“ á ferlinum Anna Júlía Íslandsmeistari í holukeppni DeChambeau hljóp um og leyfði áhorfendum að snerta bikarinn DeChambeau leiðir með þremur fyrir lokadaginn Åberg með eins höggs forskot Fór fyrst í stöngina en síðan holu í höggi Rory og Cantlay leiða á US Open Woods segir að Opna bandaríska muni reyna líkamlega á kylfinga „Fylgir því þvílík sæla að koma hingað aftur“ Hætt við að skilja: „Framtíð okkar er best varið saman“ „Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“ Sýking í litlu tá heldur Jon Rahm frá keppni á opna bandaríska „Þurfum að fylgjast betur með andlegri heilsu annarra“ Ótrúlegt gengi Scott í hættu og eina sem hann getur gert er að bíða Masters-sigurvegarinn brotnaði saman þegar hann minntist Murrays Brjálaður út í British Airways fyrir að skilja kylfurnar sínar eftir Vann sitt fyrsta PGA-mót með pabba sinn sem kylfusvein Sjá meira
Tiger Woods verður meðal kylfinga á Masters Tiger Woods hefur þegið boð um að keppa á Masters sem fer fram í byrjun næsta mánaðar. 21. mars 2024 07:00
Tiger þurfti vökva í æð og hætti keppni á miðjum hring Endurkomu Tiger Woods á PGA-mótaröðina í golfi var beðið með töluverðri endurvæntingu en á fimmtudagskvöld var hann mættur til leiks á mótaröðinni í fyrsta sinn síðan í apríl á síðasta ári. 17. febrúar 2024 09:28
Tiger Woods segist vera verkjalaus Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods er að fara að taka þátt í sínu fyrsta golfmóti síðan í desember. Hann keppir á Genesis Invitational mótinu sem hefst í dag. 15. febrúar 2024 16:30
Tiger Woods telur sig enn geta unnið PGA mót Tiger Woods hefur hægt og rólega snúið aftur á golfvöllinn eftir að hann slasaðist í bílslysi fyrir nær þremur árum. Hann stefnir á að taka þátt í PGA móti í hverjum mánuði árið 2024. 18. desember 2023 21:30