Hin átján ára gamla Hildur Maja Guðmundsdóttir kom sá og sigraði á Norðurlandamótinu um helgina. Hún varð fjórfaldur meistari, í stökki, á jafnvægisslá, í fjölþraut og í liðakeppninni sem íslenska liðið sigraði.
Valur Páll Eiríksson hitti þessa Selfossmær í heimkynnum Gerplu og ræddi við hana um einstaka frammistöðu hennar á Norðurlandamótinu.
„Þetta var sögulegur árangur, bæði hjá körlum og konum. Strákarnir lentu í þriðja sæti í liðakeppni sem er sögulegt og við í fyrsta sæti í liðakeppninni. Unglingaliðin voru bæði á palli líka þannig að þetta var bara sögulegur árangur,“ sagði Hildur Maja.

Mjög gaman að uppskera svona stórt
Hversu gaman er þetta?
„Þetta er mjög gaman og það er mjög gaman að uppskera svona stórt. Sjá að vinnan er að skila sér,“ sagði Hildur
Liðsfélagi Hildar, Thelma Aðalsteinsdóttir, hlaut silfur í fjölþrautinni um helgina en hún hafði unnið flestöll gullin á Íslandsmótinu fyrir nokkrum vikum síðan. Á því Íslandsmóti fékk Hildur einmitt hvert silfrið á fætur öðru en það snerist við. Þær stöllur hvetja hvora aðra áfram.
Hvernig leið henni eftir Íslandsmótið að vera í öðru sæti á eiginlega hverju áhaldi?
„Það var bara allt í lagi. Ég er búin að verða í öðru sæti síðustu þrjú ár,“ sagði Hildur og vildi ekki gera mikið úr því. Hún og Thelma eru í mikilli samkeppni en eru þær að hvetja hvora aðra áfram?
Við erum mjög góðir liðsfélagar
„Já, já. Á hverjum einasta degi þá hvetjum við hvora aðra áfram og styðjum við bakið á hvorri annarri í hverju sem er. Við erum mjög góðir liðsfélagar. Það er mjög skemmtilegt að það skuli vera svona mikil keppni á milli okkar. Við notum það til að drífa okkur áfram,“ sagði Hildur.

Hildur kemur frá Selfossi og býr þar enn. Hún þakkar foreldrum sínum fyrir fjölmargar klukkustundir af bílferðum fram og til baka.
„Ég er búin að vera í þessu síðan ég var fimm ára, í Gerplu. Ég byrjaði í íþróttaskólanum á Selfossi þegar ég var lítil en svo kom ég hingað,“ sagði Hildur.
Ferðast yfir Hellisheiðina á æfingar
Er ekkert bras að þurfa að ferðast svona mikið á hverjum degi?

„Þau skutluðu mér þegar ég var yngri en ég tók líka strætó. Núna er ég komin með bílpróf þannig að þetta er svolítið auðveldara. Þetta snýst bara um skipulag, eitt, tvö og þrjú. Þá gengur þetta upp,“ sagði Hildur en hún þarf engu að síður að færa miklar fórnir fyrir fimleikana.
„Já en ég bara vel það. Mér finnst það mjög skemmtilegt,“ sagði Hildur og það snýst eiginlega allt um fimleika hjá henni.
Reynir að hugsa ekki um fimleika
„Ég reyni að kúpla mig út þegar ég er heima. Ekki að hugsa um fimleika en það er mjög erfitt. Ég er alltaf eitthvað að hugsa um fimleika. Fimleikarnir eru eiginlega bara lífið núna,“ sagði Hildur.
Næst á dagskrá hjá henni er Evrópumót eftir þrjár vikur og svo að klára stúdentsprófið í desember. En hvert setur hún stefnuna?
„Toppurinn væru Ólympíuleikarnir 2028 en ég er á góðri uppleið ef ég ætla þangað. Ég verð bara að halda áfram og gera mitt besta til þess að komast þangað,“ sagði Hildur.
