Morgunblaðið neitar að birta grein Hjálmtýr Heiðdal skrifar 11. apríl 2024 21:00 Meðfylgjandi grein, Lágkúra illskunar?, var send Morgunblaðinu þ. 22. mars s.l. Greinin hefur ekki enn verið birt á síðum blaðsins og litlar líkur á því að svo verði. Greinin er svar við rangfærslum ritstjóra og blaðamanns Morgunblaðsins og á því fullt erindi til lesenda blaðsins. Lágkúra illskunar? Það hefur löngum verið ljóst að Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins er dyggur stuðningsmaður Ísraels. Það er sama á hverju gengur, trú hans á að Ísrael sé hið eilífa fórnarlamb er óbilandi. Um þetta eru mýmörg dæmi. Í febrúar 2022 skrifaði hann t.d. leiðara þar sem hann fullyrti að gagnrýni á Ísrael væri gyðingaandúð og „óværa fortíðar“, þ.e. nasismi. Ennfremur að „Ísrael virðist oft og tíðum þurfa að sæta strangari kröfum en önnur lönd“ og að gagnrýni á Ísrael „er úr öllu samhengi við þær mælistikur sem notaðar eru á önnur lönd.“ Þessir þankar ritstjórans gefa okkur innsýn í huga manns sem útilokar raunveruleikann til að komast áfram með sín skrif um „fórnarlambið“ og réttlæta þjóðernishreinsanir sem Ísrael hefur ástundað frá fyrstu tíð - í bráðum 77 ár. Lærlingar ritstjórans vilja ekki láta sitt eftir liggja í stuðningi og hollustu við Ísrael og herinn sem fer hamförum í Palestínu. Andrés Magnússon blaðamaður skrifar 19. mars grein í Morgunblaðið með titlinum „Hamas og tölfræði dauðans á Gaza“ og segir okkur að „tölfræði um fallna á Gazasvæðinu hefur frá upphafi verið vafa undirorpin“ og ritstjórinn skrifar síðan pistil í Staksteinum með sama boðskap. Andrés vitnar í erlenda skríbenta sem eiga það sameiginlegt að vera síonistar og hluti af þeirri varnarsveit Ísraels sem á að sýna okkur fram á að Ísrael sé í fullum rétti og ávirðingar gagnrýnenda því ómarktækar og oftast hreinar lygar. Andrés og ritstjórinn eru þessa dagana að reyna að telja fólki trú um að þjóðarmorð Ísraelshers á Gaza sé lygi, að mannfallið sé uppspuni; „Nú kokgleypa ríki, alþjóðastofnanir, miðlar og annars upplýst fólkfullyrðingar um þjóðarmorð á Gasa“. Meðal alþjóðastofnana sem hafa „kokgleypt fullyrðingar“ um þjóðarmorð, eða um hættu á þjóðarmorði sé að ræða, er Alþjóðadómstóllinn. Nú er ráð að skoða skrif Andrésar og Davíðs í öðru ljósi, nefnilega í ljósi rannsókna frá viðurkenndum aðilum sem njóta trausts á alþjóðavettvangi og hafa enga hagsmuni af því að rangfæra eða blekkja. Vísinda- og læknaritið The Lancet sem var stofnað 1823 hefur birt grein sem ber titilinn „Engar vísbendingar um uppblásna dánartíðni frá Heilbrigðisráðuneyti Gaza“ Og hverjar eru niðurstöður rannsakenda The Lancet? „Með því að nota opinberar upplýsingar, bárum við saman dánartíðni Heilbrigðisráðuneytisins á Gaza við aðskilda heimild [tölur um fallna starfsmenn UNRWA] um dánartíðni og fundum engar vísbendingar um uppblásna tíðni.“„Tilkynningar um dánartíðni er afgerandi vísbending um alvarleika stríðsátaka, en tíðnin getur líka verið blásin upp eða vantilkynnt í pólitískum tilgangi. Vegna yfirstandandi átaka á Gaza hafa sumir stjórnmálaflokkar [og Morgunblaðið] haft frammi efasemdir um tilkynningar um fjölda fallinna af hálfu Heilbrigðisráðuneytisins á Gaza (HRNG). HRNG hefur í gegnum tíðina greint frá nákvæmum gögnum um dánartíðni, með misræmi milli skýrslna frá HRNG og sjálfstæðum greiningum á vegum Sameinuðu þjóðanna. Misræmið var á bilinu 1,5% til 3,8% í fyrri átökum. Samanburður á dánartölum HRNG og ísraelska utanríkisráðuneytisins fyrir stríðið 2014 sýndi um 8,0% misræmi.“ Lokaorð sérfræðinganna hjá The Lancet ættu blaðamenn og ritstjóri Morgunblaðsins að gaumgæfa sérstaklega: „Efasemdir almennings um núverandi skýrslur Heilbrigðisráðuneytisins á Gaza gætu grafið undan aðgerðum til að draga úr skaða borgara og vinnu við lífsnauðsynlegt hjálparstarf.“ Hvað liggur að baki þessum skrifum starfsmanna Morgunblaðsins? Skrifa þeir sína pistla af illum hvötum? Af lágkúrulegri andúð á Palestínumönnum - þ.e. rasisma? Ég tel að tilgangurinn sé augljóslega sá sami og yfirvalda í Ísrael - að gera upplýsingar um glæpi Ísraelshers á Gaza tortryggilegar og að hjálpa Ísrael að telja fólki trú um að „siðprúðasti her í heimi“ (Most Moral Army in the World) reyni að takmarka dráp á almennum borgurum - og börnum auðvitað. En um helmingur Gazabúa eru börn. Staðfestar tölur um fjölda Palestínumanna sem Ísraelsher hefur nú þegar drepið á Gaza og hin geigvænlega eyðilegging á innviðum og heimilum, sýna glöggt að það eru almennir borgarar og lífsskilyrði þeirra sem eru meginskotmarkið. Það blasir við að stjórnvöld Ísraels stefna að yfirtöku alls lands Palestínu Með þessum skrifum ganga þeir starfsmenn Morgunblaðsins, sem standa að baki ritsmíðunum, erinda árásaraðilans – árásarhers og ríkisstjórnar sem virðir enginn mannréttindi eða alþjóðasamninga. Höfundur er formaður Félagsins Ísland - Palestína og höfundur bókarinnar Íslandsstræti í Jerúsalem. Heimild: https://www.thelancet.com/journals/lancet/article/PIIS0140-6736(23)02713-7/fulltext Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Mest lesið Háskólinn og rektorskjörið Gyða Margrét Pétursdóttir ,Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir Skoðun Fékk hann ekki minnisblaðið? Hjörtur J Guðmundsson Skoðun Betra og skilvirkara fjármálakerfi Benedikt Gíslason Skoðun Þegar heiftin nær tökum á hrútakofanum Heimir Már Pétursson Skoðun Geðræni sjúkdómurinn sem gleymist að tala um Stefán Guðbrandsson Skoðun Halldór 15.02.2025 Halldór Sérlög til verndar innflytjendum? Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Áskorun til atvinnuvegaráðherra Björn Ólafsson Skoðun Hvammsvirkjun – frumhlaup og gullhúðun Mörður Árnason Skoðun Skattahækkanir, miðstýring og ESB-þráhyggja Anton Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Betra og skilvirkara fjármálakerfi Benedikt Gíslason skrifar Skoðun Háskólinn og rektorskjörið Gyða Margrét Pétursdóttir ,Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir skrifar Skoðun Fékk hann ekki minnisblaðið? Hjörtur J Guðmundsson skrifar Skoðun Áskorun til atvinnuvegaráðherra Björn Ólafsson skrifar Skoðun Skattahækkanir, miðstýring og ESB-þráhyggja Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Sérlög til verndar innflytjendum? Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Höldum yngri þingmönnum aðskildum frá hinum eldri ! Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvammsvirkjun – frumhlaup og gullhúðun Mörður Árnason skrifar Skoðun Geðræni sjúkdómurinn sem gleymist að tala um Stefán Guðbrandsson skrifar Skoðun Aukinn veikindaréttur – aukið jafnrétti kynjanna – fyrir félagsfólk VR Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar Skoðun Þegar heiftin nær tökum á hrútakofanum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Verður dánaraðstoð leyfð í Danmörku í náinni framtíð? Bjarni Jónsson skrifar Skoðun Flugvöllur okkar allra! Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar Skoðun Svar við rangfærslum Félags atvinnurekenda um tollamál Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Við þurfum að ræða um Evrópusambandið Kristján Reykjalín Vigfússon skrifar Skoðun Sannleikurinn um undirbúning útlendingafrumvarpsins Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig bætum við stafræna umgjörð heilbrigðiskerfisins? Arna Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar raunveruleikinn er forritaður Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hvernig byggjum við framtíð matvælaiðnaðar á Íslandi? Oddur Már Gunnarsson,Salvör Jónsdóttir skrifar Skoðun Á Sjálfstæðisflokkurinn sér viðreisnar von? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Valentínus Árni Már Jensson skrifar Skoðun Velferð framar verðstöðugleika: Hvers vegna lífskjör ættu að vera aðalatriðið Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Barnavernd í brennidepli! Merki um öryggi – Signs of Safety Gyða Hjartardóttir skrifar Skoðun Kolbikasvört staða María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Faglegt og jákvætt sérfræðiálit Skipulagsstofnunar um Coda Terminal Edda Sif Pind Aradóttir skrifar Skoðun Ekkert um okkur án okkar Alma Ýr Ingólfsdóttir skrifar Skoðun One way Ticket á Litla-Hraun í framtíðinni! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Rauðsokkur í Efra-Breiðholti Edith Oddsteinsdóttir skrifar Skoðun Jafningjafræðsla um stafrænt ofbeldi Hjalti Ómar Ágústsson skrifar Skoðun Hugtakinu almannaheill snúið á haus Björg Eva Erlendsdóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson ,Snæbjörn Guðmundsson,Elvar Örn Friðriksso,Friðleifur E. Guðmundsson,Snorri Hallgrímsson,Sigþrúður Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Háskólinn og rektorskjörið Gyða Margrét Pétursdóttir ,Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir skrifar
Skoðun Aukinn veikindaréttur – aukið jafnrétti kynjanna – fyrir félagsfólk VR Þorsteinn Skúli Sveinsson skrifar
Skoðun Hvernig byggjum við framtíð matvælaiðnaðar á Íslandi? Oddur Már Gunnarsson,Salvör Jónsdóttir skrifar
Skoðun Velferð framar verðstöðugleika: Hvers vegna lífskjör ættu að vera aðalatriðið Eggert Sigurbergsson skrifar
Skoðun Faglegt og jákvætt sérfræðiálit Skipulagsstofnunar um Coda Terminal Edda Sif Pind Aradóttir skrifar
Skoðun Hugtakinu almannaheill snúið á haus Björg Eva Erlendsdóttir,Þorgerður María Þorbjarnardóttir,Árni Finnsson ,Snæbjörn Guðmundsson,Elvar Örn Friðriksso,Friðleifur E. Guðmundsson,Snorri Hallgrímsson,Sigþrúður Jónsdóttir skrifar