Innlent

Fjármálaáætlun kynnt og van­traust lagt fram

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
bylgjan-frettir_2024-Vísir-frétt-3x2@2x-100 1

Í hádegisfréttum segjum við frá fjármálaáætlun sem nýr fjármálaráðherra kynnti í morgun. 

Gert er ráð fyrir áframhaldandi halla á rekstri ríkissjóðs á næstu árum og segir ráðherra mikilvægt að ná jafnvægi í ríkisfjármálunum í stað þess að taka dýfur með miklum niðurskurði. 

Þá heyrum við í Ingu Sæland formanni Flokks fólksins sem lagði í dag ásamt þingflokki Pírata fram vantrauststillögu á hendur ríkisstjórninni í heild sinni. 

Að auki segjum við frá niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu sem komst að því í dag að brotið hafi verið á rétti þeirra Magnúsar D. Norðdahl og Guðmundar Gunnarssonar í talningamálinu svokallaða í Norðvesturkjördæmi.

Einnig verður rætt við Guðjón Friðriksson sagnfræðing um brunann í Kaupmannahöfn í morgun þegar eitt elsta hús borgarinnar skemmdist mikið í eldsvoða. 

Í íþróttunum er það úrslitakeppnin í körfunni sem nú er í fullum gangi og einnig verður farið yfir leik Víkinga og Fram í Úlfarsárdal í gær. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×