Það leynist ýmislegt skemmtilegt í tösku Maju eins og sjá má:

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?
Heyrnatól: Bose heyrnartólin koma með mér flest. Fullkomin til að einbeita sér, koma sér í gír og síðast en ekki síst öflug eyrnaskjól. Algjör nauðsyn í mínum bókum.

Dagbók: Mikil ró fyrir hugann að hafa allt skipulag í einni bók. Líka ákveðin hugleiðsla að skrifa á pappír. Mæli mikið með.

Chanel snyrtibudda: Hún sér til þess að allir smáhlutir séu á einum stað.
Ég þarf að alltaf að kanna sirka átta sinnum hvort ég sé ekki örugglega með húslykla þegar ég fer út úr húsi og þá auðveldar hún leitina.

Regn límmiðar: Ég starfa líka sem markaðsstjóri hjá Regn; nýju appi sem býður notendum að kaupa og selja elskuð föt. Þessir límmiðar eru alltaf í veskinu og ég lauma þeim á vel valda staði þegar ég á leið hjá.

Myndavél: Amma gaf mér um daginn gömlu stafrænu vélina hans afa. Þegar ég opnaði hana var fullt af eldgömlum myndum af okkur fjölskyldunni, algjör fjársjóður. Svo nú tek ég við af honum og skjalfesti góð augnablik.

Sólgleraugu: Hvort sem það er sól eða ekki. Við vorum að taka inn nýtt merki í Húrra sem heitir Flatlist en þessi eru einmitt frá þeim.

Orkusteinn: Þessi á að hjálpa manni að taka ákvarðanir og er líklega bara allra meina bót. Maður má alltaf við smá auka góðri orku.
Ofan á þetta get ég bætt hárklemmu, varalit, varasalva, handáburði og stundum tölvu. Þetta er meira og minna það sem fylgir mér daglega.

Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?
Dagbókin mín er í miklu uppáhaldi. Sóllilja systir mín er flink í bókbandi og bjó hana til handa mér. Framan á kápuna saumaði hún upphafsstafina mína MMT. Þessi bók hefur fylgt mér síðustu tvö ár, eins og sést á greyinu, en þarna eru ótal „to do“ listar, dagatöl og minnispunktar.

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?
Chanel buddan, ég skipti reglulega um töskur og þá kippi ég henni með, og þar með öllu því mikilvægasta. Hún kemur líka í veg fyrir að töskurnar verði sjúskaðar að innan sem er lykillinn að því að halda töskunum í góðu standi til lengri tíma, enda fátt meira súrt en að t.d. púður opnist í töskunni.
Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?
Hvíta Bottega Veneta taskan mín. Það er hægt að nota hana sem clutch, skella henni á öxlina og lengja í bandinu. Hún passar við allt og er því mikið notuð. Ef ég þarf á stærri tösku að halda þá á ég tvær góðar frá Longchamp og Burberry.

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?
Já, ég er ágæt í því. Þegar ég skipti um tösku þá neyðist maður hálfpartinn til að gera það í leiðinni. Það er líka orðinn vani hjá mér að ganga frá öllu auka dóti úr töskunni þegar ég kem heim svo skipulagið er almennt í ágætis málum.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?
Ég á þó nokkrar sem ég er dugleg að skipta á milli. Þegar ég var í námi í Köben vann ég hjá fyrirtæki sem rak lúxusmerki í Skandinavíu; Gucci, Burberry, Bottega Veneta og fleiri og þá lét ég verða að nokkrum kaupum sem ég sé ekki eftir.
Ég er líka dugleg að skipta á töskum við mömmu en núna er ég með í láni frá henni Longchamp körfutösku sem ég fæ ekki nóg af.

Stór eða lítil taska og afhverju?
Get ekki valið, lítil ef ég kemst upp með það! Ég vil helst aldrei burðast með neitt umfram það sem ég þarf hvort sem ég er að fara í vinnu eða í lengra ferðalag.