Starfsfólk Tónlistarmiðstöðvar: Anna Rut Bjarnadóttir, Signý Leifsdóttir, Leifur Björnsson, María Rut Reynisdóttir, Ólafur Dan Snorrason, Egill Gunnarsson, Finnur Karlsson, Hrefna Helgadóttir og Helena Sif Gunnarsdóttir. Á myndina vantar Sigtrygg Baldursson sem var erlendis.Cat-Gundry Beck
„Áfram íslensk tónlist,“ sagði María Rut framkvæmdastjóri nýrrar tónlistarmiðstöðvar við opnun. Tónlistarmiðstöð var formlega opnuð þann 23. apríl í nýjum höfuðstöðvum við Austurstræti 5 í Reykjavík. Á eftir var opið hús þar sem gestir gátu hitt starfsfólk miðstöðvarinnar og skoðað nýjar höfuðstöðvar.
„Tónlistarmiðstöð er stofnuð með það að markmiði að verða einn af hornsteinum íslensks tónlistarlífs og -iðnaðar. Tillagan að framkvæmd hennar kemur úr skýrslu starfshóps sem skipaður var af mennta- og menningarmálaráðherra á Degi íslenskrar tónlistar þann 1. desember 2020. María sagði í ræðu sinni að hana hefði aldrei órað fyrir því að þegar þessi skýrsla væri unnin að ný Tónlistarmiðstöð yrði einhvern tímann að veruleika og hvað þá svona hratt.
Lilja sagði í ræðu sinni að stofnun Tónlistarmiðstöðvar hefði gengið svo vel því undirbúningsvinnan var unnin svo vel, og svo skýr samstaða tónlistarsenunnar hefði verið lykilatriði að þessari velgengni en í júní 2023 var fyrsta heildarlöggjöf um tónlist samþykkt á Alþingi.
Hlutverk Tónlistarmiðstöðvar er að vera samstarfsvettvangur hagsmunaaðila tónlistar á Íslandi, sinna fræðslu og stuðningi við tónlistarfólk og tónlistartengd fyrirtæki, styðja við uppbyggingu tónlistariðnaðarins, kynna íslenska tónlist og tónlistarfólk á erlendri grundu og vera nótnaveita fyrir íslensk tónverk.
Tónlistarmiðstöð er jafnframt falin umsjón með rekstri og starfsemi nýs Tónlistarsjóðs sem sameinar gamla Tónlistarsjóð, Hljóðritasjóð og Útflutningssjóð. Upplýsingar um umsóknarfresti má nálgast á nýjum vef miðstöðvarinnar,“ segir í fréttatilkynningu frá tónlistarmiðstöðinni.
Í spilaranum hér fyrir neðan má sjá innslag frá Stöð 2 af opnuninni:
Hér má sjá myndir frá opnun:
Kórinn Kliður var með söngatriði, en þeirra sérstaða er að syngja aðeins verk eftir kórmeðlimi. Flutningurinn var í stjórn Snorra Hallgrímssonar. Cat-Gundry BeckKórinn steig nokkur spor. Cat-Gundry BeckMaría Rut lokar formlega forverum skrifstofunnar, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar, og Tónverkamiðstöðvar. Allt starfsfólk og starfsemi hefur nú flust til Tónlistarmiðstöðvar, og þakkar hún teyminu fyrir að hafa látið yfirfærsluna ganga vel. Cat-Gundry BeckEinar Bárðarson stjórnarformaður Tónlistarmiðstöðvar var veislustjóri og kynnti inn Maríu Rut Reynisdóttur, nýjan framkvæmdastjóra, og Lilju Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra. Cat-Gundry BeckMargt var um manninn.Cat-Gundry BeckSnorri Hallgrímsson stýrði kórnum. Cat-Gundry BeckÞað skapaðist mikil stemning við opnunina. Josie Gaitens, Valgeir Skorri Vernharðsson úr hljómsveitinni Celebs, tónlistarkonan Brynja og Helena Sif stóðu að spjalli. Cat-Gundry BeckLilja Dögg Alfreðsdóttir, menningarráðherra, sagði að það væri ótrúlegt að upp úr ösku heimsfaraldurs hafi nú risið ný Tónlistarmiðstöð og tónlist hafi orðið einstaklega illa fyrir barðinu á kórónuveirunni. Cat-Gundry BeckCat-Gundry BeckJose Luis Anderson sem gengur undir listamannanafninu Anderval er nýr meðlimur í kórnum og flutti sólóverk eftir sig, en hann hefur gert Ísland að heimili sínu. Cat-Gundry BeckLilja Dögg Alfreðsdóttir í góðum félagsskap með Öddu Rúnu nýjum yfirmanni menningarmála hjá Reykjavíkurborg, Friðriki Friðriksson, framkvæmdastjóri Sviðslistarmiðstöðvar og fleirum. Cat-Gundry BeckBragi Valdimar, formaður tónskáldafélags Íslands, og Guðrún Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri STEFs gefa nýrri Tónlistarmiðstöð tónverk eftir tónlistarmanninn Baldvin Hlynson en á verkið er myndræn framsetning á opinni sexund. Cat-Gundry BeckÞað var mikið tónlistarstuð í loftinu. Cat-Gundry BeckÁrni Þór Árnason, umboðsmaður Ólafs Arnalds, Anna Jóna Dungal, umbosðmaður Celebs, og Inga Magnes Weisshappel sem er í forsvari fyrir Wise Music Iceland gerðu sér glaðan dag. Cat-Gundry BeckHermigervill spilaði eingöngu íslenska tónlist í teitinu.Cat-Gundry BeckKarítas Óðinsdóttir, Eydís Evensen og Ásgeir Trausti. Cat-Gundry BeckMarta og Þorbjörg Marinós frá Menningarráðuneytinu voru í góðum gír. Cat-Gundry Beck