Þórsarar hafa spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. apríl 2024 14:46 Tómas Valur Þrastarson er ekki gamall en hann er engu að síður að fara að spila sinn fjórða oddaleik í kvöld. Vísir/Bára Stórleikur fer fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld þegar heimamenn í Njarðvík og Þórsarar spila hreinan úrslitaleik um sæti í undanúrslitaeinvígi Subway deildar karla í körfubolta. Einvígið gæti ekki verið mikið jafnara. Bæði lið hafa unnið tvo leiki og bæði lið hafa líka unnið útileik í einvíginu. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst með Körfuboltakvöldsstrákunum klukkan 18.45. Þeir gera síðan lika leikinn upp eftir hann og velja PlayAir leiksins og Play leiksins. Njarðvíkingar tryggðu sér oddaleik á heimavelli með því að vinna síðasta leik í Þorlákshöfn en tveir síðustu leikir einvígisins hafa einmitt unnist á útivelli. Þórsarar þekkja það mjög vel að vera í þessari stöðu því þetta verður fimmti oddaleikur liðsins á síðustu fimm árum. Í raun hafa Þórsarar spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik í átta liða úrslitum 2019. Þá spiluðu þessi lið sitthvorn oddaleikinn sama kvöldið. Þórsarar voru síðan í oddaleik á móti Stjörnunni í undanúrslitum á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum 2021 og spiluðu tvo oddaleiki í úrslitakeppninni í fyrra, fyrst unnu þeir Hauka á útivelli í oddaleik í átta liða úrslitunum en töpuðu svo á móti Val á Hlíðarenda í oddaleik í undanúrslitunum. Njarðvík vann fyrsta leikinn í einvíginu nokkuð sannfærandi en síðustu þrír leikir hafa allir verið æsispennandi og síðasti leikurinn í Ljónagryfjunni endaði í framlengingu. Oddaleikir Njarðvíkur og Þór á síðustu tólf árum Njarðvík 2 sigrar og 5 töp Átta liða úrslit 2013: Tap fyrir Snæfelli á útivelli (82-84) Undanúrslit 2014: Tap fyrir Grindavík á útivelli (95-120) Átta liða úrslit 2015: Sigur á Stjörnunni á heimavelli (92-73) Undanúrslit 2015: Tap fyrir KR á útivelli (94-102) Átta liða úrslit 2016: Sigur á Stjörnunni á útivelli (79-75) Undanúrslit 2016: Tap fyrir KR á útivelli (64-92) Átta liða úrslit 2019: Tap fyrir ÍR á heimavelli (74-86) Þór Þorl. 4 sigrar og 2 töp Átta liða úrslit 2012: Sigur á Snæfelli á heimavelli (72-65) Átta liða úrslit 2017: Tap fyrir Grindavík á útivelli (82-93) Átta liða úrslit 2019: Sigur á Tindastól á útivelli (94-93) Undanúrslit 2021: Sigur á Stjörnunni á heimavelli (92-74) Átta liða úrslit 2023: Sigur á Haukum á útivelli (95-93) Undanúrslit 2023: Tap fyrir Val á útivelli (95-102) Subway-deild karla UMF Njarðvík Þór Þorlákshöfn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Sjá meira
Einvígið gæti ekki verið mikið jafnara. Bæði lið hafa unnið tvo leiki og bæði lið hafa líka unnið útileik í einvíginu. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. Útsendingin hefst með Körfuboltakvöldsstrákunum klukkan 18.45. Þeir gera síðan lika leikinn upp eftir hann og velja PlayAir leiksins og Play leiksins. Njarðvíkingar tryggðu sér oddaleik á heimavelli með því að vinna síðasta leik í Þorlákshöfn en tveir síðustu leikir einvígisins hafa einmitt unnist á útivelli. Þórsarar þekkja það mjög vel að vera í þessari stöðu því þetta verður fimmti oddaleikur liðsins á síðustu fimm árum. Í raun hafa Þórsarar spilað þrjá oddaleiki síðan Njarðvík var síðast í oddaleik í átta liða úrslitum 2019. Þá spiluðu þessi lið sitthvorn oddaleikinn sama kvöldið. Þórsarar voru síðan í oddaleik á móti Stjörnunni í undanúrslitum á leið sinni að Íslandsmeistaratitlinum 2021 og spiluðu tvo oddaleiki í úrslitakeppninni í fyrra, fyrst unnu þeir Hauka á útivelli í oddaleik í átta liða úrslitunum en töpuðu svo á móti Val á Hlíðarenda í oddaleik í undanúrslitunum. Njarðvík vann fyrsta leikinn í einvíginu nokkuð sannfærandi en síðustu þrír leikir hafa allir verið æsispennandi og síðasti leikurinn í Ljónagryfjunni endaði í framlengingu. Oddaleikir Njarðvíkur og Þór á síðustu tólf árum Njarðvík 2 sigrar og 5 töp Átta liða úrslit 2013: Tap fyrir Snæfelli á útivelli (82-84) Undanúrslit 2014: Tap fyrir Grindavík á útivelli (95-120) Átta liða úrslit 2015: Sigur á Stjörnunni á heimavelli (92-73) Undanúrslit 2015: Tap fyrir KR á útivelli (94-102) Átta liða úrslit 2016: Sigur á Stjörnunni á útivelli (79-75) Undanúrslit 2016: Tap fyrir KR á útivelli (64-92) Átta liða úrslit 2019: Tap fyrir ÍR á heimavelli (74-86) Þór Þorl. 4 sigrar og 2 töp Átta liða úrslit 2012: Sigur á Snæfelli á heimavelli (72-65) Átta liða úrslit 2017: Tap fyrir Grindavík á útivelli (82-93) Átta liða úrslit 2019: Sigur á Tindastól á útivelli (94-93) Undanúrslit 2021: Sigur á Stjörnunni á heimavelli (92-74) Átta liða úrslit 2023: Sigur á Haukum á útivelli (95-93) Undanúrslit 2023: Tap fyrir Val á útivelli (95-102)
Oddaleikir Njarðvíkur og Þór á síðustu tólf árum Njarðvík 2 sigrar og 5 töp Átta liða úrslit 2013: Tap fyrir Snæfelli á útivelli (82-84) Undanúrslit 2014: Tap fyrir Grindavík á útivelli (95-120) Átta liða úrslit 2015: Sigur á Stjörnunni á heimavelli (92-73) Undanúrslit 2015: Tap fyrir KR á útivelli (94-102) Átta liða úrslit 2016: Sigur á Stjörnunni á útivelli (79-75) Undanúrslit 2016: Tap fyrir KR á útivelli (64-92) Átta liða úrslit 2019: Tap fyrir ÍR á heimavelli (74-86) Þór Þorl. 4 sigrar og 2 töp Átta liða úrslit 2012: Sigur á Snæfelli á heimavelli (72-65) Átta liða úrslit 2017: Tap fyrir Grindavík á útivelli (82-93) Átta liða úrslit 2019: Sigur á Tindastól á útivelli (94-93) Undanúrslit 2021: Sigur á Stjörnunni á heimavelli (92-74) Átta liða úrslit 2023: Sigur á Haukum á útivelli (95-93) Undanúrslit 2023: Tap fyrir Val á útivelli (95-102)
Subway-deild karla UMF Njarðvík Þór Þorlákshöfn Mest lesið Hermann hættur með ÍBV Íslenski boltinn Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Körfubolti Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Körfubolti Fleiri fréttir Meisturunum spáð sigri í Bónus deildunum Svona var kynningarfundurinn fyrir fyrir Bónus-deildirnar Álftanes lét Frakkann fara og samdi við Okeke Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Sjá meira