Lífið

Aron passaði varla inn í bílinn

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron og Austin Mini fara ekki vel saman.
Aron og Austin Mini fara ekki vel saman.

Í síðasta þætti af 0 upp í 100 hitti Magnea Björg leikarann Aron Már Ólafsson sem er oft kallaður Aron Mola.

Saman skoðuðu þau tvær bifreiðar. Annars vegar Pontiac Trans Am sem hefur oftar en ekki vakið athygli í kvikmyndum síðustu áratugi.

Einnig settust þau inn í Austin Mini og má segja að Aron hafi í raun ekki passað inni í þann bíl, svo lítill er hann.

Hér að neðan má sjá brot úr síðasta þætti.

Klippa: Aron passaði varla inni í bílinn





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.