María Sigrún er ósátt með hvernig hlutirnir æxluðust en Ingólfur Bjarni Sigfússon ritstjóri Kveiks mun hafa sagt eitthvað á þá leið að hæfileikar hennar lægju ekki á sviði rannsóknarblaðamennsku, en hún væri frábær fréttalesari. Vísir náði ekki í Ingólf Bjarna við vinnslu fréttarinnar. María Sigrún segist hafa fengið að vita þetta á miðvikudaginn.
„Já, að minna krafta væri ekki óskað áfram þar. Ég held að það sé best að ég tjái sig sem minnst um þetta og betra að þú ræðir við mína yfirmenn sem eru Ingólfur Bjarni og Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóri fréttastofunnar.

Um er að ræða ágreining um innslag sem María Sigrún var að vinna að. Hún vill vitaskuld ekki segja um hvað það snerist og síst við blaðamann annars miðils.
„Ég er að vonast til að það verði þá í Kastljósi. Minn hugur stendur til þess að koma því út.“
Ljóst er að á einhverju hefur gengið en María Sigrún hefur víðtæka reynslu sem fréttamaður, hún hefur starfað í 19 ár hjá RÚV, er með próf í hagfræði og meistarapróf í fjölmiðlafræði.
„Ég er fréttamaður, vil halda áfram að vera fréttamaður og hugsa meira um hvað ég er að fjalla um en hvar ég er að fjalla um það. En ég ætla nú bara að vera keik og koma þessu innslagi út en þetta verður ekki sama umgjörð og til stóð,“ segir María Sigrún.
Hún segir eðlilegt að það komi upp ágreiningur á ritstjórnum sem þessum, hún vildi leysa þennan ágreining en nú hefur verið loku fyrir það skotið, hún er ekki lengur hluti Kveiks.