Rowling hefur orðið tíðrétt um trans fólk á undanförnum misserum og ítrekað lýst því sem hættulegu konum í ræðu og riti. Radcliffe lýsti stuðningi við trans fólk eftir að Rowling kallaði trans fólk „rándýr“ árið 2020. Emma Watson og Rupert Grint, meðleikarar Radcliffe, andmæltu orðum Rowling sömuleiðis.
Breski rithöfundurinn hefur ekki fyrirgefið leikurunum fyrir að vera öndverðrar skoðunar. Í síðasta mánuði sakaði hún Radcliffe og hin um að halla sér upp að hreyfingu sem græfi undan konum og átti þar sem trans fólk.
Radcliffe segist ekki hafa átt í neinum beinum samskiptum við Rowling eftir að hann mótmælti henni árið 2020 í viðtali við tímaritið Atlantic. Honum þyki það ákaflega dapurlegt.
Um ummæli sín fyrir fjórum árum segir Radcliffe að honum hefði fundist það heigulskapur af sér að segja ekkert í ljósi þess að hann hefði unnið með samtökum sem reyna að koma í veg fyrir sjálfsvíg hinsegin fólks um árabil, að því er kemur fram í frétt The Guardian.
„Ég vildi reyna að hjálpa fólki sem varð fyrir neikvæðum áhrifum af þessum ummælum og að segja að ef þetta væru skoðanir Jo [Rowling] þá væru það ekki skoðanir allra þeirra sem tengdust Potter-merkinu,“ segir Radcliffe.
Þrátt fyrir að líf hans hefði verið allt annað hefði Rowling ekki skapað Harry Potter þá þýði það ekki að sannfæring hans sé bundin henni alla tíð.
„Ég held áfram að styðja rétt alls LGBTQ-fólks og ég ætla ekki að tjá mig frekar um það,“ segir leikarinn.