Körfubolti

Báðir þjálfarar Skallagrímsliðsins hætta

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Atli Aðalsteinsson hefur stýrt Skallagrímsliðinu í síðasta skiptið í bili.
Atli Aðalsteinsson hefur stýrt Skallagrímsliðinu í síðasta skiptið í bili. Skallagrímur Körfubolti

Atli Aðalsteinsson mun ekki endurnýja samning sinn sem þjálfari karlaliðs Skallagríms í körfuboltanum og aðstoðarmaður hans Hafþór Ingi Gunnarsson er einnig á förum.

Skallagrímur datt út í átta liða úrslitum úrslitakeppni 1. deildar karla á móti Þórsurum á dögunum en einvígið fór alla leið í oddaleik. Skallagrímur vann ellefu leiki og tapaði ellefu leikjum í deildarkeppninni í vetur. Liðið var síðan tuttugu stigum yfir í oddaleiknum á móti Þór fyrir norðan en tapaði leiknum á endanum í framlengingu.

Hafþór Ingi gaf þetta út á lokahófi Körfuknattleiksdeildar Skallagríms og var honum þar klappað vel í lófa og þakkað fyrir hans framlag og vinnu, bæði sem aðstoðarþjálfari meistaraflokksins og sem þjálfari Ungmennaflokks karla.

Í dag tilkynnti Körfuknattleiksdeild Skallagríms svo að hún og Atli Aðalsteinsson hafa komist að samkomulagi um að endurnýja ekki samninginn þeirra á milli en samningurinn við Atla rann út eftir tímabilið. Stjórnin notaði tækifærið í frétt á miðlum Skallagríms, þakkaði Atla fyrir ómetanlegar stundir á undanförnum árum og óskaði honum velfarnaðar í framtíðinni.

Atli hefur þjálfað meistaraflokksliðið síðan 2019 eða í fjögur tímabil. Hann fór meðal annars með liðið í oddaleik gegn Hamri um að fara upp í Subway deildinni á síðasta tímabili.

Atli var einnig aðstoðarþjálfari kvennaliðs Skallagríms þegar þær lönduðu bikarmeistaratitlinum undir stjórn Guðrúnar Óskar Ámundadóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×