Vilja að plássum í sumarfrístund sé útdeilt með sanngjarnari hætti Lovísa Arnardóttir skrifar 11. maí 2024 07:01 Valgerður segir að fyrsti kostur sé að fá meira fjármagn í kerfið þannig öll börn geti verið í frístund eins og þau þurfa á sumrin. Mynd/aðsend og Vísir/Vilhelm Foreldra grunnskólabarna í Vesturbænum kalla nú eftir því að Reykjavíkurborg leggi meira fjármagn í frístund á sumrin svo fleiri komist að. Sé það ekki gert kalla þau eftir því að plássum í frístund sé úthlutað með sanngjarnari hætti en nú.
Til að fá pláss í frístund að sumri þarf að sitja fyrir framan tölvu tiltekin dag á tilteknum tíma og panta pláss. Sé það ekki gert er líklegt að foreldrar fái ekki pláss í frístund eða fái takmarkað pláss. Hópur foreldra barna í Vesturbæ Reykjavíkur skrifaði grein um málið sem birt var á vef Vísis í vikunni. Undir greinina skrifa 24 foreldrar. Meðal þeirra er Valgerður Pálmadóttir. Hún segir í samtali við fréttastofu þau aðeins hafa fengið jákvæðar viðtökur við greininni frá öðrum foreldrum en hafi ekkert heyrt í fulltrúum borgarinnar. „Fólk er almennt sammála okkur en hefur líka verið að benda okkur á aðrar hliðar málsins. Eins og að aðgengi fatlaðra að frístund með þessu fyrirkomulagi geti verið mjög takmarkað,“ segir Valgerður. Sumarfrí grunnskólabarna er um tíu vikur. Sumarfrí vinnandi fólks er um fjórar til fimm en Valgerður segir marga foreldra oft búna að nýta hluta þess í páska- og sumarfrí. Það geti því verið margar vikurnar sem þurfi að fylla með einhvers konar námskeiði eða pössun fyrir barnið eða börnin að sumri. Dýrt að missa af plássinu Bent er á það í greininni að það geti verið afar dýrkeypt fyrir fjölskyldur að missa af plássi í frístund. Það sé forsenda þess að foreldrar komist til vinnu en auk þess séu almennt námskeið annars staðar töluvert dýrari. Vikan í frístund, frá 8.30 til 16.30, kosti um 15 þúsund en Valgerður segir að sem dæmi hafi hún greitt um 30 þúsund fyrir námskeið í Myndlistarskólanum sem aðeins var hálfan daginn. „Um er að ræða mikið niðurgreidda þjónustu á vegum borgarinnar, sem kostuð er með útsvari sem við borgarbúar greiðum í sameiningu til samreksturs samfélagsins okkar,“ segir í grein foreldranna og að þetta kerfi bitni fyrst og fremst á börnunum sjálfum. Þau vilji vera í frístund með vinum sínum Valgerður er með barn í öðrum bekk og segir að sem dæmi síðasta sumar hafi hún fengið mun færri vikur í frístund en þau hefðu óskað sér. Hún hafi svo heyrt af einhverjum sem fékk fjórar vikur en aðrir aðeins eina og átt bágt með að trúa því að ekkert skipulag væri að baki því hvernig plássunum hefði verið útdeilt. „Ég hélt að ég væri að misskilja þetta. Það væri verið að fara yfir umsóknirnar með einhverjum sanngjarnari hætti. Svo spáði ég ekkert meir í þessu fyrr en við vorum að sækja um núna.“ Enn á biðlista Nú hafi þau farið beint á biðlista og bíði enn eftir því að fá svar um það hvort sonur þeirra fá pláss í frístund og í hversu margar vikur. Alls eru sex í boði. Á meðan þau bíða þora þau ekki að bóka annað. „Við erum komin með eina og hálfa viku en sóttum um fimm. Þetta getur orðið mjög mikið púsl. Við höfum ekki keypt önnur námskeið því við viljum bíða og sjá hvort við fáum svör frá borginni. Maður er auðvitað að taka áhættu með því en maður vill ekki skrá sig eða borga fyrir eitthvað þegar maður gæti átt kost á frístund. Þetta er mjög óþægileg staða og er mjög stressandi.“ Blöskrar fyrirkomulagið Hún segist auk þess hafa heyrt af því að fyrirkomulagið sé ekki eins í öllum hverfum. Sums staðar sé eftirspurnin meiri en annars staðar. „Þetta er niðurgreidd þjónusta og mjög ódýrt miðað við annað sem fólk er að kaupa. Mér blöskrar svo að það sé farið svona illa með opinbert fé. Þetta eru skattpeningarnir okkar allra og svo er þetta auk þess bara hrópandi óréttlæti. Að þeir sem sækja um fyrst fái allt og svo sértu jafnvel bara tuttugu mínútum of seinn og færð ekkert. Valgerður segir fyrstu kröfu hópsins að borgin setji meiri peninga í þetta kerfi. Börnin og foreldrar þeirra séu almennt mjög ánægð í frístund og það væri best fyrir börnin að fá að vera þar að sumri eins og að vetri, þegar þörf er á. „En á meðan það er ekki settur meiri peningur í þennan málaflokk finnst okkur allavega lágmarkskrafa að þessum takmörkuðu gæðum sé útdeilt á einhvern sanngjarnan hátt. Miðað við öll tölvuforritin sem eru til í dag ætti ekki að vera mikið mál að skapa eitthvað kerfi þar sem fólk getur sett í fyrsta, annað og þriðja val og hafi auk þess eitthvað aðeins meira ráðrúm til að skipuleggja þetta. Einhvern lengri glugga. Svo væri bara einhver sem færi yfir allar umsóknir og útdeildi á sanngjarnan hátt.“
Frístund barna Skóla- og menntamál Grunnskólar Reykjavík Sveitarstjórnarmál Mest lesið Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Innlent Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Erlent Þau kvöddu á árinu 2024 Erlent Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Innlent Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Innlent Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Veður Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Innlent Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Erlent Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Innlent Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði og Þrengsli opna ekki í dag Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Gleðileg jól, kæru lesendur Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Varað við ferðalögum víða um land Margir á síðasta snúningi með jólapakkana Í sumum tilfellum eina hátíðlega stund dagsins Men Tolla komið í leitirnar: „Sannkölluð jólasaga“ Vonskuveður og þau sem eru á síðasta snúningi Fjúgandi hálka í kirkjugörðum Reykjavíkur Stolið hálsmen Tolla dúkkaði upp tuttugu árum síðar Nóg að gera hjá slökkviliðinu í nótt Mette óskaði Kristrúnu til hamingju Aðfangadagur: Hvar er opið og hve lengi? „Skiptir sannleikurinn engu máli?“ Fjölmenni gekk fyrir frið í miðborginni Rútur skildar eftir á Holtavörðuheiði og leiðinni lokað Vísnabók gefin til nýrra Hvergerðinga frá Hveragerðisbæ Vandræðamál sem ríkisstjórnin fær í arf Komust með flugvélinni á ögurstundu Stærstu mál stjórnarinnar bíða til 2026 Mínútu fyrr á ferðinni væri Tómas allur Allt kapp lagt á að landsmenn komist heim fyrir jól Segir ríkisstjórnarsáttmálana keimlíka Sjá meira