Hollywood-miðillinn Deadline greinir frá. Þar segir að myndin, sem enn á eftir að fá nafn, muni fjalla um aðalpersónuna Mason, leikinn af Statham, og líf hans á afskekktri skoskri eyju. Þegar hann bjargar ungri konu úr sjónum, sem hafði orðið úti í miklum stormi, hefst röð atburða sem verður til þess að griðarstaður hans á eyjunni verður að engu. Hann neyðist þá til að hætta í einangrun og horfast í augu við drauga fortíðar.
Áformað er að tökur hefjist á myndinni í nóvember, og munu þær fara fram í kvikmyndaveri Baltasars í Gufunesi, auk tökudaga á Bretlandi.
Bæði Statham og Baltasar verða framleiðendur fyrir sitt hvort framleiðslufyrirtækið. Framleiðslufyrirtækið Black bear kemur einnig að framleiðslu.
Samkvæmt frétt Deadline mun Black bear kynna myndina á Cannes-markaðnum í þessari viku.
Statham hefur gert garðinn frægan með frammistöðum sínum í ófáum hasarmyndunum. Til að mynda Fast and the furious, Expendables og Collateral.
Mynd Baltasars Kormáks, Snerting, sem byggð er á samnefndri bók Ólafs Jóhanns Ólafssonar, verður heimsfrumsýnd 29. maí næstkomandi og verður frumsýnd í framhaldinu um allan heim. Þegar hafa um 5 milljónir manns horft á sýnishorn myndarinnar á YouTube.