Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni barst neyðarkall frá umræddum skipstjóra klukkan 2:42, þess efnis að annar bátur væri að sökkva um það bil sex sjómílur norðvestur af Garðskagavita.
Þyrlusveit Gæslunnar var þegar í stað kölluð út á hæsta forgangi, ásamt sjóbjörgunarsveitum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þá var nálægum skipum og bátum stefnt á vettvang.

„Skömmu eftir að neyðarkallið barst Landhelgisgæslunni hafði tilkynnandi aftur samband og tjáði varðstjórum í stjórnstöð að hann væri búinn að bjarga manninum úr sjónum en bátsverjanum tókst að komast í björgunargalla áður en bátur hans sökk. Maðurinn var kaldur eftir veruna í sjónum og var ákveðið að sjúkrabíll biði hans á bryggjunni á Sandgerði. Sá sem bjargaði manninum sigldi með hann þangað,“ segir í tilkynningunni frá Gæslunni, sem barst fjölmiðlum rétt eftir klukkan fjögur í nótt.
Þá segir að báturinn hafi marað í hálfu kafi en björgunarsveitir myndu freista þess að draga hann til hafnar.
„Landhelgisgæslan vill koma á framfæri sérstökum þökkum til skipstjóra strandveiðibátsins sem sýndi mikið snarræði við björgun mannsins og einnig til annarra viðbragðaðila sem brugðust við með skjótum og fumlausum hætti.“
