Reuters-fréttastofan hefur eftir heimildarmönnum sínum, sem hún segir háttsetta rússneska embættismenn, að Pútín vilji semja um vopnahlé en hann sé einnig tilbúinn að halda stríðinu áfram eins lengi og þörf krefji fallist Úkraínumenn ekki á það. Rússar hafa nú tæplega fimmtung Úkraínu á valdi sínu.
Pútín var spurður út í þær fréttir á blaðamannafundi í Hvíta-Rússlandi í dag. Hann sagði að hefja ætti friðarviðræður að nýju á grundvelli „raunveruleikans á staðnum“ og í anda tillaganna sem voru ræddar á fyrstu vikum stríðsins fyrir rúmum tveimur árum.
Dmytro Kúleba, utanríkisráðherra Úkraínu, gaf lítið fyrir meintan friðarvilja Pútín í færslu á samfélagmiðlinum X í dag. Þar sakaði hann Pútín um að reyna að spilla fyrir friðarfundi sem á að fara fram í Sviss að undirlagi Úkraínumanna í næsta mánuði með því að senda frá sér fölsk skilaboð um að hann sé tilbúinn að stöðva stríðið.
„Pútín hefur engan áhuga á að stöðva árás sína á Úkraínu þessa stundina. Aðeins regluföst og sameinuðu rödd meirihluta alþjóðasamfélagsins getur þvingað hann til þess að velja frið fram yfir stríð,“ skrifaði Kuleba.

Dregur lögmæti Selenskíj í efa
Markmið friðarfundarins í Sviss í júní er að finna samhljóm á meðal þjóða um hvernig hægt sé að binda enda á stríðið í Úkraínu, að sögn Reuters. Volodýmýr Selenskíj, forseti Úkraínu, boðaði til fundarins en hann hefur sagt að Pútín ætti ekki að sækja hann. Gestgjafarnir í Sviss hafa ekki boðið Rússum.
Pútín dró lögmæti Selenskíj sem viðsemjanda í efa þegar hann ræddi við fréttamenn í dag. Fimm ára kjörtímabili Selenskíj sem forseta lauk í vikunni en forsetakosningar voru ekki haldnar í ljósi þess að herlög gilda vegna stríðsins.
„En við hvern eigum við að semja? Það er ekki gagnslaus spurning. Við áttum okkur auðvitað á að lögmæti sitjandi þjóðhöfðingja er útrunnið,“ sagði Pútín.
Selenskíj hefur ítrekað sagt að friður á forsendum Rússa komi ekki til mála og hefur heitið því að vinna til baka hernumin svæði, þar á meðal Krímskaga sem Rússar innlimuðu fyrir áratug. Reuters segir að Úkraínumenn og vestrænir bandamenn þeirra taki ummælum Pútín um lögmæti Selenskíj til marks um að honum sé ekki alvara með tali um friðarviðræður.
Pútín var sjálfur endurkjörinn forseti í fjórða sinn í kosningum í vor sem fá lýðræðisríki telja hafa verið sanngjarnar. Þar á hann að hafa fengið rúmlega 88 prósent atkvæða. Sitji Pútín út kjörtímabilið verður hann þaulsetnasti leiðtogi Rússlands frá því að alræðisherrann Jósef Stalín var og hét.
Stjórnvöld í Kreml ganga nú æ harðar fram í að kæfa niður allt andóf gegn Pútín og fangelsa og ógna pólitískum andstæðingum og frjálsum fjölmiðlum í landinu.