Yfirmaður PGA-mótaraðarinnar, Jay Monahan, greindi frá andláti Murray í fréttatilkynningu fyrr í kvöld.
Murray hafði verið að keppa um helgina í Charles Schwab-áskoruninni í Texas sem er hluti af PGA-mótaröðinni en dró sig úr leik eftir sextán holur vegna veikinda í gær.
Efnilegur kylfingur en lítt þekktur
Murray fæddis í Raleigh í Norður-Karólínu og var afar efnilegur kylfingur sem barn. Hann var efstur í sínum aldursflokki í Bandaríkjunum sem unglingur og vann þrjú ungmennamót Callaway Junior PGA-mótaraðarinnar frá 2006 til 2008.
Murray gerðist atvinnumaður 2015 og vann tvö mót á PGA-mótaröðinni, þar á meðal Sony Open í Hawaii í janúar. Eftir þann sigur komst hann upp í 46. sæti heimslistans, það hæsta sem hann náði fyrr og síðar. Hann var í 58. sæti þegar hann lést.
Murray var hins vegar lítt þekktur og vann það sér helst til frægðar að segja Rory McIlroy að fara til fjandans á miklum hitafundi eftir sameiningu PGA og LIV-mótaraðanna í fyrra.