Í tilkynningu á vef stjórnarráðsins segir að gestgjafinn sé Ulf Kristersson forsætisráðherra Svía en aðrir þátttakendur eru Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra, Alexander Stubb, forseti Finnlands, Jonas Gahr Störe forsætisráðherra Noregs og Metta Frederiksen forsætisráðherra Dana.
Á fundinum á að ræða stuðning Norðurlandanna við Úkraínu og stöðuna á friðaráætlun Úkraínu. „Um er að ræða þriðja leiðtogafund Norðurlandanna með forseta Úkraínu en fyrri fundir voru haldnir í Helsinki í maí á síðasta ári og í Osló í desember sl,“ segir ennfremur.
Að loknum leiðtogafundinum mun Bjarni eiga tvíhliðafund með Selenskí.
Úkraínuforseti segir á samfélagsmiðlinum X að aðaláhersla verði lögð á að tryggja Úkraínumönnum betri loftvarnakerfi, vopn fyrir hermennina á víglínunni og að samstarf á sviði vopnaframleiðslu verði eflt.
Að loknum fundum með leiðtogunum mun Selenskí svo hitta Karl Svíakonung og áhrifamenn úr sænska hergagnaiðnaðinum.