Lífið

Kosninga­vökur fram­bjóð­enda: Hvar verða mestu fagnaðar­lætin?

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Í kvöld kemur í ljós hver flytur inn á Bessastaði síðar í sumar.
Í kvöld kemur í ljós hver flytur inn á Bessastaði síðar í sumar. Vísir/Vilhelm

Íslendingar hafa í dag valið sér forseta, og spennan er í algleymingi. Einn frambjóðandi mun standa uppi sem sigurvegari, og næsti forseti lýðveldisins, á meðan aðrir munu ekki hafa erindi sem erfiði. Þeir munu þó flestir freista þess að fagna með stuðningsfólki sínu í kvöld.

Katrín Jakobsdóttir, sem leitt hefur í flestum könnunum fram að kosningum, þó með mismiklum mun, hittir stuðningsfólk sitt á Grand Hótel í kvöld, þar sem fylgst verður með framvindu kosninganna. 

Halla Hrund Logadóttir mun taka á móti stuðningsfólki sínu í Björtuloftum í Hörpu, á meðan nafna hennar Halla Tómasdóttir tekur á móti sínu fólki í Grósku, á sama stað og hún tilkynnti formlega um framboð.

Baldur Þórhallsson mun notast við kosningaskriftstofu sína á Grensásvegi undir stuðningsfólk sitt í kvöld, og Arnar Þór Jónsson verður skammt undan, á kosningaskrifstofu sinni í Ármúla 15

Jón Gnarr býður stuðningsfólki sínu til fundar við sig á Bistro Elliðaárdal, en Steinunn Ólína býður til kosningavöku í Kakókastalanum í Mosfellsbæ. Helga Þórisdóttir fylgist hins vegar með vendingum kvöldsins af heimili sínu í Fossvogi. 

Ásdís Rán verður á Dass við Vegamótastíg á meðan Ástþór Magnússon hefur boðað til samverustundar í kirkju Óháða söfnuðarins.

Fréttastofu er ekki kunnugt um hvort eða þá hvar Eiríkur Ingi Jóhannson mun halda sína kosningavöku, né heldur Viktor Traustason verðu með sína.

Þá hafa umsjónarmenn hlaðvarpsins Þjóðmála blásið til kosningavöku fyrir óháða, það er að segja fólk sem vill fylgjast með en styður þó engan frambjóðanda sérstaklega mikið, á Nasa við Austurvöll.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×