Innlent

Fyrstu tölur úr Suðurkjördæmi: Halla Tómas­dóttir með flest at­kvæði

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Halla Tómasdóttir leiðir í Suðurkjördæmi.
Halla Tómasdóttir leiðir í Suðurkjördæmi. Vísir/Vilhelm

Halla Tómasdóttir er með flest atkvæði samkvæmt fyrstu tölum úr Suðurkjördæmi. Hún er með 37 prósenta fylgi. Á eftir henni kemur Katrín Jakobsdóttir með rúm 19 prósent og Halla Hrund Logadóttir með 16 prósent.

Þetta kom fram í beinni útsendingu fyrir skemmstu. Áður voru komnar fyrstu tölur úr Norðausturkjördæmi en þar leiðir Halla Tómasdóttir einnig.

Baldur Þórhallsdóttir er með 8,7 prósent fylgi í kjördæminu, Arnar Þór Jónsson með 6,19 prósenta fylgi, Ásdís Rán með 0,13 prósent, Ástþór Magnússon með 0,15 prósent, Steinunn Ólína með 0,74 prósent, Helga Þórisdóttir með 0,04 prósent og Viktor Traustason með 0,08 prósent.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×