Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Árni Sæberg skrifar 6. júní 2024 14:28 Ingibjörg Ösp er nýr stjórnandi rekstrarráðgjafar Expectus. Expectus Expectus ráðgjöf er nýtt félag í rekstrar- og stjórnunarráðgjöf í eigu Expectus og Ingibjargar Aspar Stefánsdóttur, sem hefur jafnframt verið ráðin framkvæmdastjóri félagsins.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að undanfarin ár hafi starfsemi Expectus þróast í auknum mæli yfir í ráðgjöf á sviði viðskiptagreindar og upplýsingatækni. Til að skerpa á áherslum í starfsemi félagsins og þróa enn frekar aðra ráðgjöf, færist nú rekstrar- og stjórnunarráðgjöf yfir í nýtt félag. Áherslur í nýju félagi muni felast í fjölbreyttum verkefnum, meðal annars á sviði stefnumótunar, breytingastjórnunar, stefnuinnleiðingar, skipulagsmála og ýmiss konar þróunarverkefna. Þetta nýja skipulag taki gildi 1. ágúst næstkomandi og starfsemi nýja félagsins muni fléttast þétt saman við þjónustu móðurfélagsins, Expectus, þegar kemur að viðskiptagreiningu, gagnavinnslu og upplýsingamiðlun. Í stjórn félagsins sitji, auk Ingibjargar, þeir Ragnar Þórir Guðgeirsson stjórnarformaður og Reynir Ingi Árnason framkvæmdastjóri Expectus. Expectus hafi undanfarin ár vaxið hratt á sviði gagnavinnslu, áætlanagerðar viðskiptagreindar og tæknilausna. Sterk rekstrarleg þekking ásamt tækniþekkingu hafi einkennt fyrirtækið og með þessari breytingu sé verið að gefa rekstrar- og stjórnunarráðgjöfinni nýjan grunn til vaxtar, byggt á fjölda árangursríkra verkefna sem Expectus hafi komið að með fyrirtækjum og stofnunum í íslensku atvinnulífi á síðastliðnum fimmtán árum. Munu vinna náið saman Í tilkynningu er haft eftir Reynir Ingi Árnason, stofnanda Expectus, að stofnun nýs félags sé liður í að þróa þjónustuframboð og styrkja fókus í ólíkum verkefnum en að félögin verði í nánu samstarfi í mörgum verkefnum. „Áskoranir fyrirtækja í íslensku atvinnulífi taka stöðugum breytingum og því er það mikil áskorun stjórnenda og skipulagsheilda að bregðast við og aðlagast. Ein stærsta seinni tíma áskorun fyrirtækja er að ná tökum á gögnunum sínum og þeirri verðmætasköpun sem fæst með skilvirkri vinnslu, notkun og miðlun þeirra. En við sjáum líka ríka þörf fyrirtækja fyrir ráðgjöf á sviði stefnuinnleiðingar og breytingastjórnunar sem m.a. byggir á þeim lærdómi sem gögn og upplýsingavinnsla færa okkur. Stefnumótunin sjálf er eitt en svo er það innleiðing stefnu með mælanlegum árangri sem er annað, þar geta margir gert svo miklu betur.“ Áhugaverð og spennandi áskorun „Það er áhugaverð og spennandi áskorun að leiða nýtt félag sem byggir á þeim trausta grunni sem felst í farsælli sögu Expectus, reynslu og þekkingu sem þar er til staðar. Við munum áfram leggja mikla áherslu á gagnadrifna ákvarðanatöku, markmið, mælikvarða og mælaborð sem er og verður leiðarstef í öllum okkar verkefnum á sviði breytingastjórnunar og stefnuinnleiðingar. Á næstu misserum munum við byggja upp öflugt teymi og þróa þjónustu okkar og afurðir svo við getum orðið enn öflugri í þjónustu við íslenskt atvinnulíf, stofnanir og stjórnvöld á tímum umbreytinga og nýrra áskorana,“ er haft eftir Ingibjörgu Ösp í tilkynningu. Þar segir að Ingibjörg Ösp hafi starfað sem ráðgjafi síðustu tvö ár, bæði sjálfstætt og fyrir Expectus auk þess sem hún er stjórnarformaður Hörpu. Áður hafi hún meðal annars starfað sem sviðsstjóri hjá Samtökum atvinnulífsins, hjá Samtökum iðnaðarins, verið framkvæmdastjóri Menningarhússins Hofs auk þess að hafa setið í stjórnum og komið að fjölda annarra verkefna. Ingibjörg Ösp sé viðskiptafræðingur að mennt með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun.
Vistaskipti Mest lesið Dýr smjörvi á Egilsstöðum vekur mikla athygli Neytendur Búið að bjóða í Skagann 3X Viðskipti innlent Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Viðskipti innlent Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Viðskipti innlent „Komin upp í þak“ í verðlagningu Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Ólöglegt bleikiefni í hveitinu Neytendur Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Viðskipti innlent Ný og nútímaleg sveit í borg Samstarf Búið að afvopna neytendur Neytendur Fleiri fréttir Búið að bjóða í Skagann 3X Brutu samkeppnislög með ótímabærri markaðssetningu Harpa vill létta lund veðurbugaðra höfuðborgarbúa Atlanta með 600 manna flugútgerð í Sádí-Arabíu Berglind gengin í eigendahópinn Staðan ekki jafnsvört og sumir vilji meina Bjartmar ráðinn aðstoðarframkvæmdastjóri Íbúar Grafarholts geta tekið til matar síns á ný „Við erum bara að reyna að lifa af“ „Komin upp í þak“ í verðlagningu Nýir eigendur taka við Melabúðinni Festi festi kaup á Lyfju Spá aukinni verðbólgu HS Orka tryggir sér fjörutíu milljarða króna Mikil fjölgun tengifarþega en mun færri ferðast til Íslands Fleiri farþegar en minni sætanýting Mikill áhugi á þrotabúi Skagans 3X Formaður atvinnuveganefndar á hlut í félaginu sem KS keypti Landsbankinn til ráðgjafar vegna sölu Íslandsbanka KS hafi fest kaup á Kjarnafæði Norðlenska Sáraroðið frá Ísafirði notað til bjargar brenndum börnum í Afganistan Brúneggjamálið tekið fyrir í Hæstarétti Úr boltanum í tryggingarnar Leiðir dýra útrás Collab meðfram MBA-námi Sóttu fjármálastjóra til Landsbankans Borgaði klink fyrir Kastalann og ekki krónu fyrir Wok On Mikið áfall fyrir íslenskan sjávarútveg Einn stærsti vinnustaður Akraness gjaldþrota Syndis ræður reyndan tölvuþrjót Gera margvíslegar athugasemdir við starfshætti Kviku Sjá meira