Sport

Dag­skráin í dag: Strákarnir okkar í Hollandi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark leiksins er Ísland sigraði England fyrir helgi.
Jón Dagur Þorsteinsson skoraði eina mark leiksins er Ísland sigraði England fyrir helgi. Richard Pelham/Getty Images

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á sjö beinar útsendingar á þessum fína mánudegi. Þar ber hæst að nefna vináttulandsleik Hollands og Íslands.

Stöð 2 Sport

Upphitun fyrir leik Hollands og Íslands hefst klukkan 18:15 áður en við skiptum út á völl tuttugu mínútum síðar.

Að leik loknum munu sérfræðingar Stöðvar 2 Sports svo mæta á ný til að gera leikinn upp.

Stöð 2 Sport 2

Real Madrid tekur á móti Murcia í spænsku ACB-deildinni í körfubolta klukkan 18:20.

Vodafone Sport

Tékkland og Norður-Makedónía eigast við í vináttulandsleik klukkan 15:50 áður en Pólverjar taka á móti Tyrkjum klukkan 18:35.

Að lokum eigast Panthers og Oilesr við í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 00:05 eftir miðnætti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×