Það leynist ýmislegt í töskunni hjá Ernu eins og sjá má hér:

Hvað er í töskunni þinni og segðu okkur aðeins frá því sem er?
Mín uppáhalds hversdags taska er íslensk hönnun frá Katrínu vinkonu minni hjá KALDA. Svört leðurtaska sem passar við allt. Taskan heitir Kria bag og er ekki stór en það er ótrúlegt hverju ég hef komið fyrir í henni. Þetta er eiginlega svona Mary Poppins taska. Þetta er það sem er undantekningarlaust í töskunni minni alla daga, ásamt fullt af nótum sem ég er misdugleg við að flokka á sinn stað:
iPhone
Lyklar
Airpods
Sólgleraugu (uppáhalds þessa dagana eru Saint Laurent gleraugu sem eru með lituðu gleri sem virka jafn vel inni sem úti og vernda augun vel)

Varasalvi. Þessi frá kóreska merkinu Laneige er sá allra besti sem ég hef prófað
Handáburður frá Aesop. Nærandi með góðri lykt. Fæst í Mikado
Frískandi rakamist fyrir andlitið frá Wild Grace er uppáhalds en það eru ayurveda húðvörur sem fást í Systrasamlaginu
Raka roll-on undir augun frá ROWSE - sem eru hreinar húðvörur og fást í Officiana
MAC varalitur í litnum Crème Cup. Er búin að vera háð þessum varalit í mörg ár. Hinn fullkomni nútral bleiktóna-litur að mínu mati
Hyljari frá RMS. Fæst í Elira
Ilmvatn í föstu formi frá uppáhalds Fischersund. Elska alla ilmina frá þeim
Klútur til styrktar Palestínu frá Sarah Musa
Greiða
Filmuvél
…og svo á ég alltaf tyggjó. Eucalyptus Extra en það fékk að víkja á myndinni af fagurfræðilegum ástæðum.

Er eitthvað sem er alltaf í töskunni þinni?
Já þetta hér að ofan er nær undantekningarlaust alltaf í töskunni. En ég fer ekki út úr húsi án þess að vera með varasalva og tyggjó. Gleymi samt mögulega stundum lyklunum eða símanum. En það er aukaatriði.

Hver er þín uppáhalds taska og afhverju?
Uppáhalds taskan mín er erfðagripur frá Kötu frænku minni sem lést fyrir nokkrum árum. Geggjað töff svört lakktaska í skrítnu formi.
Hefur einhver hlutur tilfinningalegt gildi?
Ekki þannig. En mér þykir alltaf vænt um hlutina mína. Stundum er ég samt með orkusteina í rennda vasanum í töskunni. Þeir eiga sérstakan stað.

Ertu dugleg að taka til í töskunni þinni og halda röð og reglu?
Ég reyni.
Stór eða lítil taska og afhverju?
Lítil hversdags taska til þess að halda hlutunum í röð og reglu. Annars fyllist hún af alls konar rugli og ofurhetjuköllum og bílum (þegar þú ert strákamamma). En algjört möst að vera með með stóra sundtösku að mínu mati.

Ertu gjarnan með margar töskur á þér eða margar til skiptanna?
Já, ég er oftast með tvær til þrjár töskur á mér. Þessa með hversdags-nauðsynjahlutunum, tölvutöskuna og svo sundtöskuna. Ég fer mikið í sund og er forfallin gufu-fíkill og er alltaf með nóg af dekri meðferðis.
Ég er mikið að vinna með vatnshelda tösku frá Rains svo að það leki ekki í gegn. En svo er ég alltaf með vatnsheldan sundpoka frá Swimslow ofan í töskunni fyrir allt stöffið sem ég tek með mér í sturtuna. Sundferðin er algjör ritúal í mínum bókum og inniheldur sundtaskan alls kyns gúmmelaði eins og:
Sundbol frá Swimslow
Handklæði frá TEKLA. Fæst í Officiana
Þurrbursti og olía frá Swimslow
The Balm frá Rvk Ritual
The Hair Oil frá Rvk Ritual
Saltskrúbb frá ANGAN
Andlits-serum frá ANGAN
Ilmvatn frá Fischersundi
Sjampó og næringu frá Davines
Hárbursti frá Acca Kappa. Fæst í Officiana
Líkamskrem frá Bodyologist. Fæst í Nola
Andlitshreinsi frá Bioeffect
Rakakrem frá Bioeffect
Gua Sha frá Make Up Studio Hörpu Kára
Húðtint frá Ilia. Fæst í Nola
Maskari frá Ilia. Fæst í Nola
Kinnalitur frá RMS. Fæst í Elira
Sólarpúður frá Chilli in June

Eins og listinn gefur til kynna nota ég mikið af íslenskum vörum. Ég vel meðvitað að styrkja íslenska hönnun en á sama tíma finnst mér allar þessar vörur vera á heimsklassa og ég mæli mikið með þeim. Einnig eru allar vörurnar hreinar og umhverfisvænar sem skiptir mig miklu máli.