Í fréttatilkynningu um ráðninguna segir að Saga hafi undanfarin ár starfað sem hagfræðingur á skrifstofu efnahagsmála í fjármála- og efnahagsráðuneytinu þar sem hún hafi sinnt margvíslegum verkefnum, megi þar nefna efnahagslegar greiningar og ráðgjöf, og umsjón með ýmsu alþjóðasamstarfi.
Þá hafi hún sinnt samskiptum við lánshæfismatsfyrirtækin Moodys, Fitch og S&P, sem meti lánshæfi ríkissjóðs auk þess sem hún sé í samninganefnd ríkisins en nefndin annist alla kjarasamningagerð. Áður hafi hún starfað sem ráðgjafi hjá RBB Economics í Stokkhólmi, sem sé alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki með sérhæfingu á sviði samkeppnismála.
Hún hafi lokið meistaraprófi í hagfræði frá Barcelona Graduate School of Economics árið 2017, með áherslu á rekstrarhagfræði, þjóðhagfræði og hagrannsóknir, og B.Sc. námi í hagfræði frá Háskóla Íslands.
Í starfi aðalhagfræðings muni Saga veita sveitarfélögum faglega ráðgjöf í efnahagsmálum. Aðalhagfræðingur muni bera ábyrgð á að framkvæma greiningar á efnahagslegum áhrifum gagnvart sveitarfélögum, taka þátt í að móta stefnu Sambandsins í efnahagsmálum, leggja mat á hagræna þróun sveitarstjórnarstigsins og miðla upplýsingum því tengdu til sveitarfélaga og hagaðila.