Fær ekki frest og hefur afplánun 1. júlí Hólmfríður Gísladóttir skrifar 21. júní 2024 12:56 Bannon var dæmdur í fangelsi eftir að hann neitaði að mæta fyrir þingnefnd og afhenda umbeðin gögn. Getty/Andrew Harnik Áfrýjunardómstóll í Bandaríkjunum hefur hafnað umleitan Steve Bannon, sem eitt sinn var helsti bandamaður Donald Trump, um frest á afplánun.
Bannon á að gefa sig fram við fangelsismálayfirvöld 1. júlí næstkomandi eftir að hann var dæmdur fyrir að sýna þinginu vanvirðingu þegar hann neitaði að mæta fyrir þingnefnd og afhenda umbeðin gögn. Rannsókn þingnefndarinnar snéri að tilraunum Trump til að snúa niðurstöðum forsetakosninganna 2020. Bannon var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi en áfrýjaði dómnum. Þriggja manna áfrýjunardómstóll í Washington D.C. staðfesti niðurstöðu undirréttar og í síðasta mánuði staðfesti dómarinn Carl Nichols, sem var skipaður af Trump, beiðni saksóknara um að Bannon yrði gert að hefja afplánun. Bannon áfrýjaði ákvörðun Nichols til áfrýjunardómstólsins og freistaði þess að fá um frjálst höfuð að strjúka á meðan málið færi sína leið í dómskerfinu, mögulega alla leið inn á borð Hæstaréttar. Áfrýjunardómstóllinn komst hinsvegar að þeirri niðurstöðu að ekkert við mál Bannon réttlæti það að honum yrði veitt undanþága. Þess má geta að dómurinn var klofinn í afstöðu sinni; tveir dómaranna, annar skipaður af Joe Biden og hinn af Barack Obama, vildu senda Bannon í steininn en sá þriðji, skipaður af Trump, sagði að hann ætti að ganga laus þar til endanleg niðurstaða væri komin í málið. Hér má finna ítarlega umfjöllun Guardian.
Bandaríkin Donald Trump Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2024 Mest lesið Leitin að Slater blásin af Erlent Myndir frá eldsvoðanum í Húsafelli í nótt Innlent Fleiri foreldrar í vanda með máluppeldi en áður Innlent „Ég mun ekki taka þátt í prófkjöri aftur“ Innlent Ómögulegt að vita hvað leynist í „brúnku-nefspreyjum“ sem seld eru á samfélagsmiðlum Innlent Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Erlent „Hann á að vera hér á Íslandi“ Innlent Hiti víða yfir tuttugu stigum á Austurlandi Veður Stungumaðurinn á hlaupahjólinu áfram í haldi Innlent Tekinn próflaus á 120 kílómetra hraða Innlent Fleiri fréttir Leitin að Slater blásin af Frakkar ganga að kjörborðinu Útlitið svart hjá Macron fyrir kosningar á morgun Bandarískum kjósendum líst illa á stöðuna í forsetaslagnum Ungur maður tekinn af lífi fyrir að hlusta á K-pop í Norður-Kóreu Efna til allsherjarleitar að Slater Mossack og Fonseca heitinn sýknaðir Segir Biden „algjörlega vanhæfan“ „Ég veit að ég er ekki ungur maður“ „Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda Ævilangt fangelsi fyrir morðið og nauðganirnar Biden augljóslega þyngdur af ellibelgnum Sakfelldur fyrir að myrða Emilie Meng Þakið á flugvelli í Nýju Delí hrundi vegna mikillar rigningar Biden hikandi og hás í fyrri kappræðum kosninganna Bein útsending: „Óvinsælustu frambjóðendur sem boðið hefur verið upp á“ Tilnefna Ursulu til að sitja fimm ár í viðbót Færeysku og grænlensku bætt við Google Translate Trump getur ekki gripið fram í fyrir Biden í nótt Krafa um hraða vaxtalækkun og Tækniskólinn rís í Hafnarfirði Fyrstu kappræðurnar í fjögur ár gætu skipt sköpum Eldur kviknaði í ráðuneyti Vill varúðarmerkingar á gjörunna matvöru Herforingi handtekinn eftir valdaránstilraun Valdaránstilraunin virðist hafa mistekist Segir hermennina hafa traðkað á skotsárum sínum Óttast valdaránstilraun í Bólivíu Smellti rembingskossi á eiginkonuna við heimkomuna Staðfesta skipun Ruttes Óttast að nettröll tefji rannsókn með samsæriskenningum Sjá meira