Sport

Dag­skráin í dag: Besta deildin í aðal­hlut­verki

Siggeir Ævarsson skrifar
Blikar fagna marki fyrr í sumar
Blikar fagna marki fyrr í sumar Vísir/Pawel

Það er nóg um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport þennan sunnudaginn. Leikmenn Bestu deildarinnar fá ekkert EM frí en það eru þrír leikir í Bestu deildinni í beinni í dag.

Stöð 2 Sport

Það verður toppslagur á Kópavogsvelli klukkan 19:00 þegar Breiðablik og ÍA mætast. Stúkan fer svo í loftið 21:20 þar sem allir leikir umferðarinnar verða gerðir upp.

Stöð 2 Sport 4

Golfið á daginn á Stöð 2 Sport 4. Klukkan 16:00 hefst bein útsending frá KPMG PGA mótaröð kvenna.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 19:00 er viðureign FH og Fylkis á dagskrá.

Besta deildin

KA fær Fram í heimsókn og hefst útsending frá þeim leik klukkan 16:50

Vodafone Sport

Formúlan á sviðið á Vodafone Sport rásinni. Klukkan 09:30 hefst bein útsending frá Formúlu 2 keppninni á spáni og klukkan 12:30 er það svo Formúla 1 keppnin sem tekur við.

Þar á milli er svo leikur í bandaríska fótboltanum, þegar NJ/NY Gotham og Washington Spirit mætast í NWSL deildinni og hefst útsending klukkan 17:25.

Við lokum kvöldinu svo á Vodafone rásinni með pílu, European Darts Open, og hefst sú útsending klukkan 19:25.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×