Henry lýsir þessu í nýjum pistli sem hann birtir á Vísi. Hann bendir á að þeir Miðflokksmenn, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður og Bergþór Ólason, án þess þó að nefna þá á nafn, hafi viljað glósa um að Mannréttindastofnun væri komið á koppinn á síðustu dögum þingsins. „Í umræðum á Alþingi nýlega gerði þingmaður góðlátlegt grín að ríkisstjórninni. Haft var eftir honum í fjölmiðlum að „VG fái mannréttindastofnunina“ en að „þau kyngi rest“.“
Óheppileg tenging
Henrý segir þetta ekki góðan upptakt af mikilvægu starfi sem stofnuninni sé ætlað að sinna. Hann segist enginn áhugamaður um pólitíska framtíða Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs en vert sé að hafa í huga að ein afglöp stjórnmálahreyfingar útiloki ekki að hún hafi rétt fyrir sér í öðru máli.
„Vinstri græn mega gjarnan njóta þess að hafa beitt sér í þessu mikilvæga máli.“
Henry Alexander hefur áhyggjur af því að Mannréttindastofnunin verði kennd við Vinstri græn.
Þá segir hann mikilvægt að minna að slík sjálfstæð stofnun sem óháður málsvari mannréttinda er forsenda samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. „Og ef það hefur einhvern tímann verið mikilvægt að standa vörð um mannréttindi þá er það nú. Áskoranirnar eru slíkar í samtímanum að mannréttindabarátta á í vök að verjast.“
Vonar að stofnunin verði ekki kennd við VG
Henry ítrekar mikilvægi þess að Mannréttindastofnun Íslands verði ekki flokkspólitískt þrætuepli.
„Eins og maður hefur oft fylgst með í íslensku samfélagi þá er það sitthvað að samþykkja lög og að innleiða þau þannig að sómi sé að. Ef mál hafa í umræðunni verið eyrnamerkt sem hugarfóstur tiltekinnar stjórnmálahreyfingar er hætt við að innleiðingin verði í skötulíki.“
Henry segir að vonandi fagni fleiri stofnun stofnunarinnar en eingöngu þingmenn einnar stjórnmálahreyfingar „sem vissulega á hrós skilið fyrir að hafa siglt málinu í höfn“.