Tíska og hönnun

„Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Ofurskvísan Tania Lind er viðmælandi í Tískutali.
Ofurskvísan Tania Lind er viðmælandi í Tískutali. Aðsend

Markaðsstjórinn og tískuunnandinn Tania Lind Fodilsdóttir elskar takmarkaleysi tískunnar og eru einstakar og áberandi flíkur í miklu uppáhaldi hjá henni í bland við stílhreinan klæðaburð. Tania Lind er viðmælandi vikunnar í Tískutali.

Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda.

Tania Lind er með stílhreinan og einstakan stíl.Aðsend

Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna?

Hvað hún er fjölbreytt og síbreytileg. Ég elska hvað tíska er tak­marka­laus, það eru eng­ar regl­ur, það er ekk­ert rétt eða rangt þú bara klæðir þig í því sem þér finnst flott og gef­ur þér sjálfs­traust – það er tíska fyr­ir mér.

Tania elskar fjölbreytileika tískunnar.Aðsend

Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju?

Ég á mér alveg nokkrar uppáhalds flíkur en ég held mikið upp á kápurnar mínar tvær frá Charlotte Simone. Statement flíkur sem eru ekki framleiddar á massavísu svo þú sérð ekki alla í þeim. Svo eru Hoys buxurnar frá Samsøe must have flík í fataskápinn - suit buxur sem passa við allt og auðvelt að klæða upp og niður.

Charlotte Simone kápan er í miklu uppáhaldi hjá Töniu.Aðsend

Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni?

Nei get ekki sagt það, ég klæði mig eftir skapi svo fer mikið eftir því. Einnig finnst mér þau dress sem ég vel í hraði oft koma betur út heldur en þau sem ég pæli mikið í. Finnst langskemmtilegast að byrja daginn á að skoða fataskápinn og pikka út þær flíkur sem ég er í stuði fyrir.

Tania klæðir sig eftir skapi.Aðsend

Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum?

Ég myndi segja að stíllinn minn væri frekar stílhreinn og afslappaður með skandinavísku ívafi. Ég legg mikið upp úr tímalausum og einföldum flíkum sem lifa lengi og er auðvelt að para saman við statement yfirhafnir og skó. Mitt go to dress eru víðar suitbuxur eða leðurbuxur parað við stílhreinan topp og oversizedblazer eða kápu. Elska góða strigaskó eða töffaraleg boots.

Tania hefur gaman að því að blanda áberandi flík við einfaldari.Aðsend

Hefur stíllinn þinn breyst mikið í gegnum tíðina og hvernig þá?

Nei ekkert svo rosalega. Ég hef ætíð lagt mikið upp úr flíkum sem eru tímalausar og stílhreinar, flíkur sem passa mér svo ég get ekki sagt að hann hafi breyst mikið.

Tania hefur alla tíð haft svipaðan smekk á tímalausum flíkum.Aðsend

Nýturðu þess að klæða þig upp?

Mér finnst ekkert skemmtilegra en að klæða mig upp, hvort sem það er fyrir vinnuna eða fínna tilefni. Það gefur mér algjöran kraft að vera í outfitti sem mér líður vel í.

Töniu finnst ekkert skemmtilegra en að klæða sig upp.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni?

Ég fæ mik­inn inn­blást­ur frá fólki í kring­um mig og um­hverf­inu og finnst mér rosalega gam­an að blanda því sam­an. Annars fylgi ég alltaf innsæinu, er ekki að eltast við hvert einasta tískutrend. Mér finnst ótrúlega mikilvægt að maður fylgi þeim trendum sem henta manni og stílnum manns.

Tania velur tískutrendin vel og er fylgin sjálfri sér.Aðsend

Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði?

Nei, mér finnst bara að maður eigi að fylgja innsæinu og klæðast því sem manni þykir flott og þægilegt. Ekki að eltast við hvert einasta tískutrend fylgdu heldur því sem hentar þér og þínum stíl.

Tania og Heimir Þór kærasti hennar eru smart par.Aðsend

Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju?

Charlotte Simone kápurnar mínar eru ofarlega á þeim lista.

Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku?

Ekki fylgja hverju einasta tískutrendi, heldur fylgdu innsæinu þínu og klæddu þig eins og þú vilt - þannig líður manni best.

Tania fylgir innsæinu í tískunni.Aðsend

Hér má fylgjst með Töniu á samfélagsmiðlinum Instagram. 


Tengdar fréttir

„Ef ég væri ekki prestur væri gaman að vera poppstjarna“

Presturinn og verðandi biskup Íslands sr. Guðrún Karls Helgudóttir er með glæsilegan og einstakan stíl og segir tískuna mikilvægt tjáningarform fyrir sér. Hún þekkir stíl sinn vel, veit upp á hár hverju hún vill klæðast og er hrifin af íslenskri hönnun. Sr. Guðrún Karls Helgudóttir er viðmælandi í Tískutali.

Líður bókstaflega óstöðvandi í góðu fitti

Félagsmiðstöðvarforstöðukonan og tískuáhugakonan Yrsa Ósk Finnbogadóttir er með einstakan og líflegan stíl og sækir mikið í skandinavíska hönnun. Hún er viðmælandi í Tískutali.

Klæðir sig oft óbeint í stíl við dóttur sína

Tískuáhugakonan og ofurskvísan Selma Lind er með einstakan stíl og hefur saumað skemmtilegar flíkur á sjálfa sig. Í fyrra eignaðist Selma sitt fyrsta barn og segist hún nú vera að finna sinn stíl upp á nýtt eftir meðgönguna. Hún er viðmælandi í Tískutali.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×