Erlent

Segir Biden „al­gjör­lega van­hæfan“

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Trump hélt kosningafund í Virginia-ríki í dag. Joe Biden vann sigur þar í kosningunum 2020, en mjótt er á munum milli þeirra í skoðanakönnunum í dag.
Trump hélt kosningafund í Virginia-ríki í dag. Joe Biden vann sigur þar í kosningunum 2020, en mjótt er á munum milli þeirra í skoðanakönnunum í dag. AP/Steve Helber

Donald Trump forsetaframbjóðandi Repúblikana, segir að aldur Joe Bidens mótframbjóðanda hans, sé ekki vandamálið, heldur „algjört vanhæfi“ hans. Trump ávarpaði stuðningsmenn sína í Virgina-ríki í dag.

Trump hóf mál sitt á því að hrósa sigri í kappræðunum sem fóru fram í gærkvöldi. „Þetta var stór sigur,“ sagði hann.

Fyrri kappræður forsetaframbjóðendanna tveggja í Bandaríkjunum fóru fram í gærkvöldi, og flestum þótti Biden ekki eiga erindi sem erfiði. Frammistaðan var slík að umræða var um það hvort Demókratar ættu að skipta um frambjóðanda sem allra fyrst. Biden svaraði fyrir sig í dag.

Trump sagði í dag að aldur Bidens ætti ekki að vera neitt vandamál, hann þekki fullt af fólki á hans aldri sem séu í fínu formi. Trump segir Biden vanhæfan burtséð frá öllum elliglöpum sökum aldurs.

„Þessar kosningar eru milli styrkleika og veikleika, hæfni og vanhæfni, friðar eða stríðs,“ sagði Trump.

Ósigur fyrir „öfgavinstrið og falsfréttamiðlana“

Trump sagði kappræður gærkvöldsins ekki aðeins hafa verið ósigur fyrir Biden, heldur einnig fyrir „öfgavinstrið og falsfréttamiðlana,“ og benti svo að fjölmiðlamönnunum sem voru á fundinum. Gærkvöldið hefði einnig verið „stór stund fyrir skynsamt fólk sem vill sjá Bandaríkin verða frábær enn á ný.“

Hann hefur enga trú á því að Biden dragi sig úr framboði.

Trump vék einnig að utanríkisstefnu Bidens, sem hann sagði „veiklulega,“ og hafði uppi efasemdir um stuðning Bandaríkjanna við Úkraínu. Þá hafði hann einnig orð á stefnu Bidens í loftslagsmálum, og sagðist vilja draga úr allskonar grænum sköttum.


Tengdar fréttir

„Fíaskó næturinnar“ gæti kallað á nýjan frambjóðanda

Joe Biden Bandaríkjaforseti beið afhroð í forsetakappræðum hans og Donalds Trump í nótt, að mati stjórnmálaskýrenda. Þegar er farið að heyrast ákall um að Demókratar velji sér nýjan frambjóðanda, sem íslenskur sérfræðingur í bandarískum stjórnmálum telur ekki útilokað.

Biden aug­ljós­lega þyngdur af elli­belgnum

Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi ritstjóri fylgdist með kappræðunum vestan hafs sem fram fóru í nótt og honum er brugðið – vægast sagt.

Biden aug­ljós­lega þyngdur af elli­belgnum

Össur Skarphéðinsson fyrrverandi utanríkisráðherra og fyrrverandi ritstjóri fylgdist með kappræðunum vestan hafs sem fram fóru í nótt og honum er brugðið – vægast sagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×