Alltaf sótt í orku og gleði í klæðaburði Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 6. júlí 2024 07:00 Lóló Rósenkranz er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Aðsend Ofurþjálfarinn og glæsikvendið Lóló Rósenkranz er með einstakan og litríkan stíl sem vekur athygli en appelsínugulur er hennar uppáhalds litur. Lóló er á stöðugri hreyfingu, er með fólk í einkaþjálfun í World Class, starfar sem fararstjóri hjá Úrval útsýn, kennir pílates og skriðsund svo eitthvað sé nefnt og er sömuleiðis dugleg að klæðast skemmtilegum íþróttafatnaði. Lóló er viðmælandi í Tískutali.
Tískutal er fastur liður á Vísi þar sem rætt er við ólíka einstaklinga um þeirra persónulega stíl og hvernig tíska nýtist þeim í daglegu lífi. Klæðaburður er sannarlega fjölbreytt listform en við fáum að skyggnast inn í ólíka fataskápa og fræðast nánar um það merkilega tjáningarform sem tíska er fyrir hverjum og einum viðmælanda. Lóló Rósenkranz hefur alltaf sótt í litagleði.Aðsend Hvað finnst þér skemmtilegast við tískuna? Skemmtilegast við tískuna er fjölbreytileikinn sem gefur öllum færi á að finna eitthvað við sitt hæfi. Lóló segir fjölbreytileikann það skemmtilegasta við tískuna.Aðsend Hver er uppáhalds flíkin þín og af hverju? Uppáhaldsflíkin mín á ekkert skylt við tísku en það er íslenski upphluturinn sem ég erfði eftir ömmu mína. Mér finnst svo dýrmætt að eiga þennan íslenska þjóðbúning í skápnum þó ég hafi ekki skartað honum oft en ömmustelpan mín Dominique Eva skartaði honum á peysufatadegi Kvennaskólans á síðasta ári og það fyllti mig stolti. Lóló var fyrirsæta lengi vel og þykir vænt um einkennandi íslenskar flíkur. Hennar uppáhalds flík er íslenski upphluturinn.Aðsend Eyðirðu miklum tíma í að velja föt hverju sinni? Ég er yfirleitt mjög snögg að ákveða hverju ég ætla að klæðast hverju sinni. Lóló er yfirleitt mjög snögg að finna til föt fyrir daginn en hennar uppáhalds litur er appelsínugulur.Aðsend Hvernig myndirðu lýsa stílnum þínum? Ég er mikið fyrir þægilegan og um leið litríkan fatnað sem gefur mér mikla orku og enn meiri gleði. Þannig hefur það alltaf verið og hefur ekki kallað á neinar breytingar. Lóló hefur alltaf sótt orku og gleði í litríkar flíkur. Hér er hún ásamt sonum sínum Orra og Sindra í World Class Laugum þar sem Lóló þjálfar.Aðsend Nýturðu þess að klæða þig upp? Já ég nýt þess í botn að klæða mig upp þegar við á og skreyta mig mikið. Lóló nýtur þess í botn að klæða sig upp þegar við á.Aðsend Hvaðan sækirðu innblástur í tískunni? Mér finnst mjög gaman að fylgjast með nýjum straumum í tískunni og fæ hugmyndir út frá því sem henta mér. Lóló þykir gaman að fylgjast með nýjustu stefnum og straumum tískunnar og fá hugmyndir út frá því sem henta henni.Aðsend Ertu með einhver boð og bönn þegar það kemur að klæðaburði? Boð og bönn virka ekki. Þetta fer allt eftir smekk og hentugleika hvers og eins. Lóló segir að boð og bönn virki einfaldlega ekki í tískunni.Aðsend Hver er eftirminnilegasta flík sem þú hefur klæðst og af hverju? Eftirminnilegasta flíkin er íslenskur ofinn appelsínugulur síður kjóll sem ég sýndi á fjölmörgum tískusýningum fyrir útlendinga hérlendis og erlendis. Ástæðan er gullfallegur kjóll úr íslenskri ull og í uppáhalds litnum mínum en appelsínugulur litur hefur fylgt mér frá því ég var lítil stelpa. Lóló stórglæsileg sem sýningarstúlka en appelsínugulur hefur alltaf verið hennar litur.Aðsend Býrðu yfir einhverju góðu ráði þegar það kemur að tísku? Það hlýtur að vera best að klæða sig eftir tilfinningu og líðan hverju sinni og vera sáttur við sjálfan sig. Lóló segir að það hljóti að vera best að klæða sig eftir tilfinningu og líðan hverju sinni.Aðsend
Tískutal Tíska og hönnun Mest lesið „Svona getur þetta reynst smásálarlegt hérna“ Lífið Gelluorkan í hæstu hæðum á Gugguvaktinni Lífið Málaferli og verktakadrama seinkar framkvæmdunum á höllinni í Frakklandi Lífið Rúrik Gísla í glæsilegu eftirpartýi á Edition Lífið Simon og Garfunkel ná sögulegum sáttum: „Ég grét þegar hann sagði hversu mikið ég hefði sært hann“ Lífið PlayStation 5 Pro: Eina leiðin til að spila, ef þú tímir því Leikjavísir Þurfti aðeins nokkrar sekúndur til að tryggja liði sínu áfram í undanúrslitin Lífið Stórstjarna úr tónlistarheiminum í nýrri seríu White Lotus Bíó og sjónvarp Sjáðu stikluna: Zellweger, Firth og Grant öll í nýjustu Bridget Jones Lífið Ástkona njósnarans skildi eftir sig sjóðheit bréf Gagnrýni Fleiri fréttir Hönnunarverðlaunin 2024: Verðlaunuð fyrir Smiðju Stappað á sjóðheitri tískusýningu hönnuða framtíðarinnar Galvaskar Gucci gellur á galakvöldi Líf og fjör hjá Íslendingum á virtri hátíð í Berlín Fagurfræði: Það sem flestir hræðast þegar kemur að förðun Laufey glæsileg í 400 þúsund króna kjól Bestu hrekkjavökubúningar stjarnanna Lítið um litadýrð en glamúrinn í hávegum hafður Kynntust í Mílanó og urðu sálarsystur í tískunni Nærfatamódelin sneru aftur eftir sex ára hlé Heitustu skvísur landsins skáluðu fyrir Ástrós Skelltu sér í rússíbana með James Franco á tískusýningu ársins Hvernig náum við fram okkar bestu andlitsdráttum? „Mér leið eins og alvöru prinsessu“ Sjá meira
Simon og Garfunkel ná sögulegum sáttum: „Ég grét þegar hann sagði hversu mikið ég hefði sært hann“ Lífið
Simon og Garfunkel ná sögulegum sáttum: „Ég grét þegar hann sagði hversu mikið ég hefði sært hann“ Lífið