Lífið

Ó­birt mynd­efni úr Snertingu í nýju tónlistarmyndbandi Högna

Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar
Högni Egilsson samdi tónlistina í Snertingu, sem og lagið Broken Threads sem kom út í dag. 
Högni Egilsson samdi tónlistina í Snertingu, sem og lagið Broken Threads sem kom út í dag.  RVK Studios

Tónlistarmaðurinn Högni Egilsson og Rvk Studios hafa gefið út tónlistarmyndband í flutningi Högna við lokalag kvikmyndarinnar Snertingar, sem nú er í sýningu í kvikmyndahúsum landsins.

Baltasar Breki Samper sá um leikstjórn myndbandsins, sem skartar meðal annars óbirtu myndefni frá upptöku myndarinnar.

Snerting hefur fengið frábæra dóma gagnrýnenda, bæði hér á landi og erlendis, en Snerting hefur þegar verið sýnd erlendum gagnrýnendum í aðdraganda þess að myndin verði frumsýnd erlendis.

Í Bandaríkjunum verður Snerting frumsýnd um aðra helgi, 12. júlí og opnar þar vítt og breitt á liðlega 250 skjáum. Þegar hafa liðlega 30.000 manns séð myndina hér heima.

Myndbandið má sjá hér að neðan. 

Högni rekur sögu lagsins í samtali við fréttastofu. Lagið var það fyrsta sem hann samdi fyrir Snertingu, en Högni samdi tónlistina í myndinni. Innblástur í lagið sótti hann í verkið eftir að hafa lesið handritið að Snertingu. 

„Þetta lag fléttaðist aldrei inn í myndina sem slíka heldur varð bara lag yfir kreditlistann,“ segir Högni. Á endanum hafi þó ekki gengið upp að spila það yfir kreditlistanum. 

Baltasar Kormákur leikstjóri myndarinnar hafi því hringt í hann síðar og beðið hann um að búa til sönglag úr því. Honum hafi fundist lagið eiga skilið þá upphefð. 

Úr varð að lagið var tekið upp í hljóðveri og Rvk Studios sá um að setja myndefni sem ekki var sýnt í Snertingu inn í tónlistarmyndbandið. 

„Ég var strax mjög glaður að þessi hugmynd hafi orðið að veruleika, og upp með mér að svona mikið af flottu myndefni skuli tengjast laginu,“ segir Högni. 


Tengdar fréttir

Snerting Egils Ólafssonar við lífið og tilveruna

Egill Ólafsson segir mikilvægt að hreyfa sig til að vinna gegn framþróun Parkinson sjúkdómsins. Heimir Már slóst í gönguferð með Agli þar sem þeir ræddu um hlutverk hans í kvikmyndinni Snertingu og allt milli himins og jarðar.

Balti hélt að Pálmi myndi aldrei mæta

Baltasar Kormákur, leikstjóri kvikmyndarinnar Snerting, lýsir ótrúlegum tilþrifum Egils Ólafssonar, í hlutverki Kristófers í myndinni sem byggir á samnefndri skáldsögu Ólafs Jóhanns Ólafssonar. Baltasar segist einnig hafa leitað, árangurslaust, logandi ljósi að rétta leikaranum í hlutverk Kristófers á yngri árum. Þegar stungið var upp á syni hans, Pálma Kormáki, hafi hann ekki haft neina trú á að sonurinn myndi hafa nokkurn áhuga.

Mikið líf í Gufu­nesinu þar sem True Detecti­ve og Snerting eru tekin upp

Eitt stærsta kvikmyndaver Evrópu, sem staðsett er í Gufunesinu í Reykjavík, er töluvert aðdráttarafl fyrir erlendar framleiðslur að sögn leikstjóra og eiganda þess sem segist viss um að kvikmyndaiðnaðurinn geti verið ein af stoðgreinum landsins. Gríðarlegt umfang er á svæðinu þar sem þættirnir True detective eru teknir upp. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.