Brat Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 5. júlí 2024 23:25 Brad Pitt og Damson Idris meðleikari hans á tökustað í fyrra. EPA Bandaríski stórleikarinn Brat Pitt fer með aðalhlutverk í bíómynd um Formúlu 1 sem er meðal annars framleidd af formúlukappanum Lewis Hamilton. Myndin er í bígerð og stefnt er á frumsýningu í júní á næsta ári.
Sem stendur á myndin að heita því einfalda nafni F1. Tökur hófust í fyrra og hafa meðal annars farið fram á breska kappakstrinum á Silverstone brautinni í Formúlu 1 í fyrra. Breski kappaksturinn verður haldinn á Silverstone brautinni á sunnudag. Búist er við að tökulið verði þar í þeim tilgangi að ná myndefni fyrir bíómyndina. Þá sást nýlega til Pitt á annarri kappakstursbraut í Bretlandi, þar sem hann klæddist keppnisgalla merktum skáldaða liðinu APX GP. Heimildir BBC herma að Pitt fari með hlutverk reynsluboltans Sonny Hayes, sem snýr aftur í Formúlu 1 eftir langa fjarveru. Þá kemur fram í umfjöllun BBC að Hamilton hafi tekið virkan þátt í gerð myndarinnar og hann leitist við að gera hana eins raunverulega og mögulegt er. Þá vilji hann sýna hvernig íþróttin er í hnotskurn. Leikstjóri F1 er Joseph Kosinski, sem leikstýrði meðal annars Top Gun: Maverick. Aðrir leikarar í myndinni sem vitað er um eru óskarsverðlaunahafinn Javier Bardem og breski leikarinn Damson Idris.
Akstursíþróttir Bíó og sjónvarp Hollywood Mest lesið Myndaveisla frá stjörnufans og gleðinni í Víðidal Lífið Brat Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Bíó og sjónvarp „Þetta er enginn helvítis félagskvíði, það bara þolir mig enginn“ Áskorun Setti sér markmið og hóf veitingarekstur átján ára Lífið Högni og Snæfríður eignuðust stúlku Lífið Ólafía Hrönn reyndist vera á bak við „stóra pokamálið“ Lífið Sauð upp úr í stjörnufansi á golfmóti Coolbet Lífið Kvikmyndastjarna slær í gegn á Landsmóti hestamanna Lífið Biden móment hjá Nick Cave í Eldborg Lífið Júlía Margrét gengin út Lífið Fleiri fréttir Brat Pitt í mynd um Formúlu 1 í framleiðslu Hamilton Donald Sutherland er látinn Heimaleikurinn vann til verðlauna í Ástralíu „Gaman hvað verið er að tala fallega um samstarfsfólkið mitt“ Tengdasonur Íslands trúðaði Simon Cowell upp úr skónum Gerard Butler á klakanum í enn eitt skiptið Íslenskur hryllingstryllir á Vestfjörðum vekur athygli í Tribeca Eltihrellirinn höfðar mál gegn Netflix Þýskur risi í samstarf við ACT4 um gerð Stóra Bróður Sjá meira