Innlent

Lokað frá Heklu að Nóa­túni í hálfan mánuð

Árni Sæberg skrifar
Laugavegi verður lokað í báðar áttir frá Heklu að Nóatúni. Á þessari mynd er horft niður Laugaveginn frá Heklu í átt að Nóatúni.
Laugavegi verður lokað í báðar áttir frá Heklu að Nóatúni. Á þessari mynd er horft niður Laugaveginn frá Heklu í átt að Nóatúni. Já.is

Laugavegi verður lokað í báðar áttir milli gatnamóta Nóatúns og Laugavegs og Laugavegs 172, þar sem bílaumboðið Hekla er til húsa. Veginum verður lokað frá og með 15. júlí út 29. júlí.

Lokunin verður vegna framkvæmda Veitna ohf. vegna endurnýjunar lagna vegna uppbyggingar við Laugaveg og Nóatún.

Þvera þarf Laugaveginn til að tengja nýja kaldavatnslögn fyrir nýjar íbúðir á Heklureitnum. Hjáleiðir verða settar upp fyrir akandi um nærliggjandi götur en umferð um hjóla- og göngustíga norðanmegin við þverunina mun ekki raskast. 

Strætó mun keyra um Borgartún á meðan lokuninni stendur og strætóstoppistöðvar á Laugavegi verða óvirkar á meðan.

Hér má sjá lokunina og hjáleiðir.HNIT



Fleiri fréttir

Sjá meira


×