Innlent

Al­var­leg van­skil aukast og hryllingur í Úkraínu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Margrét Helga Erlingsdóttir les fréttirnar í kvöld sem eru í opinni í dagskrá.
Margrét Helga Erlingsdóttir les fréttirnar í kvöld sem eru í opinni í dagskrá.

Merki eru um að vanskil heimila og fyrirtækja fari vaxandi. Alvarleg vanskil fyrirtækja hafa aukist á þessu ári samkvæmt gögnum frá innheimtufyrirtækinu Motus. Þróunin er möguleg vísbending um að víðtækari fjárhagsvandi sé framundan í efnahagslífinu. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Þá sýnum við myndir frá umfangsmiklum og mannskæðum árásum Rússa í Úkraínu í dag. Á fjórða tug létust á árásunum, þar af að minnsta kosti fimm í árás á stærsta barnaspítala Úkraínu. Fólks er enn leitað í rústum spítalans og Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna kemur saman á neyðarfundi vegna árásarinnar á morgun. 

Formaður atvinnuveganefndar segir það ekki tortryggilegt að hann eigi hlut í félagi sem keypt var af Kaupfélagi Skagfirðinga, á grundvelli nýsamþykktra búvörulaga sem tekin voru fyrir í nefndinni. Þingmaður Viðreisnar segir nefndina hafa tekið gríðarmikilvægt vopn úr höndum neytenda. 

Við ræðum einnig við utanríkisráðherra sem er á leið á afmælisleiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Washington. Þá verðum við í beinni útsendingu frá umferðareyju í Vesturbænum, sem rataði í fréttir um helgina eftir að ölvaður ökumaður ók hana niður. Við ræðum við verkfræðing hjá Vegagerðinni sem ætlar að segja okkur frá hugmyndinni á bak við framkvæmdina, sem hefur sætt talsverðri gagnrýni.

Þá hittum við göngugarpinn Reyni Pétur á Sólheimum, sem er kominn með gangráð og fer flestra sinna ferða nú á hjóli eða rafskutlu, og loks verðum við í beinni útsendingu frá Íslandsmeistaramótinu í svokölluðu kappflugi.

Í sportinu hittum við knattspyrnukappann Guðmund Þórarinsson, sem er nýbúinn að semja við lið í Armeníu. Hann segir að á lokametrum ferilsins skipti peningar að sjálfsögðu máli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×