Innlent

Umferðareyjan sem ekið var yfir bæti öryggi veg­far­enda

Rafn Ágúst Ragnarsson og Bjarki Sigurðsson skrifa
Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, segir nýjar miðeyjur, líkt og sú sem skemmd var, bæta öryggi gangandi vegfarenda.
Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, segir nýjar miðeyjur, líkt og sú sem skemmd var, bæta öryggi gangandi vegfarenda. Stöð 2

Enn má sjá ummerki þess að ölvaður ökumaður ók yfir nýgerða umferðareyju í vesturbæ Reykjavíkur. Sumir íbúar á svæðinu létu í ljósi óánægju með framkvæmdirnar í kjölfar þessara frétta en Katrín Halldórsdóttir verkfræðingur hjá Vegagerðinni vill ekki meina að framkvæmdirnar séu gagnslausar.

„Við erum að setja þessar miðeyjur á milli akreina til þess að gera gangandi vegfarendum auðveldara með að þvera. Þeir þurfa bara að ganga yfir eina akrein í einu. Þeir geta þá stöðvað hér,“ segir Katrín og bendir á miðeyjuna, „Og tryggt það að næsti ökumaður stöðvi.“

Aðspurð segist Katrín ekki vita hvernig nákvæmlega spjöllin urðu enda um kjöraksturskilyrði að ræða þennan daginn.

„Ég veit nú ekkert meira en það sem hefur komið fram í fréttum en við teljum okkur hafa merkt hér frekar vel með gangbrautarskiltum, akreinamerkingum, yfirborðsmerkingum og þett agerist í dagsbirtu. Við erum aðallega bara fegin að það virðist ekki hafa orðið nein slys á fólki,“ segir Katrín.

Katrín segir nýja fyrirkomulag gatnamótana bæta öryggi gangandi vegfarenda þannig að þeir þurfi aðeins að hafa áhyggjur af einum bíl í einu þegar gatan er þveruð.

„Hér eru tvær akreinar að fara í sömu átt. Til dæmis ef vegfarendi ætlar að þvera hér yfir og ökutækið sem er nær stöðvar og sér hann. Þá hafa orðið slys þegar næsta ökutæki á akreininni sem er fjær veit ekki hvað er að gerast og heldur áfram,“ segir Katrín.

 „Við erum í rauninni að koma í veg fyrir þannig slys. Hér er hægt að tryggja það að gangandi geti stoppað og séð næsta ökutæki sem er ekið í sömu átt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×