Fótbolti

Tók lang­besta til­boðinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Guðmundur var tilkynntur hjá félaginu í gær.
Guðmundur var tilkynntur hjá félaginu í gær. Mynd/facebook síða FC Noah.

Guðmundur Þórarinsson hefur samið við lið í Armeníu. Hann segir að á lokametrum ferilsins skipta peningar að sjálfsögðu máli.

Landsliðsmaðurinn gerir eins árs samning við armenska félagið FC Noah. Eftir eitt ár er möguleiki á eins árs framlengingu. Hann kemur til félagsins frá gríska liðinu OFI Crete. Bakvörðurinn hefur verið í borginni Yerevan síðustu daga að klára samning sinn við klúbbinn.

Á sínum ferli hefur Guðmundur leikið með Sarpsborg, Nordjælland, Rosenborg, Norrköping, New York City AaB en nú mættur til Armeníu.

„Maður þurfti svona að huga aðeins að framtíðinni og fékk bara gríðarlega gott tilboð héðan. Þá var þetta rætt innan fjölskyldunnar og ákveðið að hoppa á þetta,“ segir Guðmundur í Sportpakkanum á Stöð 2 í gærkvöldi.

Eigandi félagsins er viðskiptamaðurinn Vardges Vardanyan sem er heldur betur stórhuga og stefnir hann á það að koma liðinu í Meistaradeild Evrópu.

„Ég dáist að honum hvað hann er leggja allt í sölurnar með klúbbinn. Það er búið að taka gríðarlega vel á móti mér og borgin er mjög falleg.“

Guðmundur á inni laun hjá fyrrum vinnuveitanda sínum í Krít og ætlar hann að leita réttar síns.

„Ég var búinn að fá tvö tilboð frá Grikklandi, ég fékk tilboð frá Kýpur en svo kom þetta upp. Ég verð að viðurkenna, fyrst til að byrja með, þá vissi ég ekkert um fótbolta í Armeníu en svo kynnti ég mér þetta aðeins betur og átti samtal við klúbbinn. En síðan var þetta líka langbesta tilboðið fjárhagslega sem ég var með á borðinu en síðan ætla ég líka bara að gera allt sem ég get til að hjálpa klúbbnum að komast þangað sem þeir vilja.“

Hér að neðan má sjá viðtalið við Guðmund.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×