Golf

Keegan Bradley út­nefndur fyrir­liði eftir að Tiger Woods sagði nei takk

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Tiger Woods afþakkaði fyrirliðastöðu bandaríska liðsins, en Keegan Bradley tekur stöðuna að sér.
Tiger Woods afþakkaði fyrirliðastöðu bandaríska liðsins, en Keegan Bradley tekur stöðuna að sér. Ross Kinnaird/Getty Images

Hinn 38 ára gamli Keegan Bradley hefur verið útnefndur sem fyrirliði bandaríska Ryder liðsins í golfi á næsta ári.

Bradley verður yngsti fyrirliðinn síðan Arnold Palmer var fyrirliði bandaríska liðsins árið 1963. Hann var þó ekki fyrsti kostur til að taka við fyrirliðastöðunni því bandaríska liðið vildi fá Tiger Woods til að gegna stöðunni.

Woods afþakkaði þó boðið og því mun Bradley gegna stöðu fyrirliða þegar Ryder bikarinn fer fram í New York fylki í Bandaríkjunum á næsta ári.

Bradley tekur við stöðunni af Zach Johnson sem lét af störfum eftir síðasta Ryder bikar sem bandaríska liðið tapaði.

„Ég hef aldrei fundið fyrir jafn mikilli ástríðu fyrir stærsta liðamóti golfsins,“ sagði Bradley eftir að hann var útnefndur sem fyrirliði.

Sjálfur tók hann þátt í mótinu í tvígang, árin 2012 og 2014, en bandaríska liðið tapaði í bæði skiptin.

„Ryder bikarinn er ólíkur öllum öðrum mótum og í þetta sinn verður mótið einstakt vegna þess að við munum spila á sögufrægum velli með mikla sögu og magnaða áhorfendur.“

„Ég hlakka til að byrja undirbúninginn,“ bætti Bradley við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×