Innlent

Skvetti þvagi á fanga­verði og maki saur á veggi

Ritstjórn skrifar
Kourani gerir fangavörðum lífið leitt á Litla-Hrauni.
Kourani gerir fangavörðum lífið leitt á Litla-Hrauni. Vísir

Mohamed Kourani hefur gert fangavörðum á Litla-Hrauni lífið leitt síðan hann var færður þangað úr fangelsinu á Hólmsheiði. Heimildir Vísis herma að hann hafi beitt hinum ýmsu bellibrögðum gegn fangavörðum, meðal annars að skvetta á þá þvagi, hrækja á þá og skvetta á þá sjóðandi vatni. Þá hafi hann makað saur á veggi klefa síns.

Mikill viðbúnaður er nú á Litla-Hrauni vegna Mohamads Kourani, fanga með langa afbrotasögu sem bíður nú dómsuppkvaðningar fyrir stunguárás.

Fram kom í frétt Nútímans vikunni að viðbúnaður í fangelsinu á Litla-Hrauni vegna Kourani, sem ákærður var fyrir hnífaárás í matvöruverslun í Valshverfinu í Reykjavík í mars, væri gríðarmikill - ætti sér vart hliðstæðu.

Guðmundur Ingi Þóroddsson formaður Afstöðu, félags fanga, sagði í hádegifréttum Bylgjunnar í gær að viðbúnaðurinn nú væri meiri en oftast áður, en ekkert einsdæmi. 

Þá sagði hann að viðbúnaðurinn væri fyrst og fremst Kourani sjálfum til hagsbóta. „Við erum að tala um einstakling sem er frekar veikur og fangelsi kannski ekki besti staðurinn fyrir hann. Þannig að það er aðallega verið að passa upp á að það bætist ekki á málafjöldann hjá honum.“

Málalistinn lengist

Samkvæmt heimildum Vísis innan af Litla-Hrauni hefur viðbúnaðurinn ekki komið í veg fyrir að listi mála á hendur Kourani lengist. Hann eigi yfir höfði sér kærur frá fjölda fangavarða, sem hver og einn hafi kært eða muni kæra hann fyrir nokkur brot.

Kourani hafi meðal annars hótað að myrða fangaverði og fjölskyldur þeirra, hótað að nauðga konum þeirra, skvett yfir þá þvagi og sjóðandi vatni og hrækt á þá. Þá hafi hann makað saur á veggi klefans sem hann er vistaður í.

Fá ekki að beita valdi

Þá segir heimildarmaður Vísis að nokkurrar óánægju gæti meðal fangavarða vegna viðbragða stjórnenda fangelsisins við málinu. Fangaverðir fái ekki leyfi til þess að beita Kourani úðavopnum eða kylfum, sem myndu hjálpa mikið við að taka á honum.

Fangaverðir séu þó ekki hræddir við að taka á Kourani, enda sé hann enginn sérstakur bógur.

Eigi ekki heima í fangelsinu

Þá séu fangaverðir sammála Guðmundi Inga í Afstöðu, fangelsi sé ekki réttur staður fyrir Kourani. Hann eigi heima á viðeigandi stofnun. Þannig hafi hann í tvígang verið fluttur á geðdeild en í bæði skiptin verið útskrifaður áður en 72 klukkustundir höfðu liðið.

Heiðar Smith, formaður Félags fangavarða, segist í samtali við fréttastofu ekki geta tjáð sig um einstök mál. Ekki hefur náðst í Pál Winkel fangelsismálastjóra við vinnslu fréttarinnar.


Tengdar fréttir

„Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál“

„Ég kann ekki að gera árás með hníf. Ég er ekki ógnandi maður. Ég er bara venjulegur maður. Ef þið haldið mér áfram í fangelsi þá verður vandamál,“ sagði Mohamad Kourani fyrir dómi í dag en hann er meðal annars grunaður um að stinga tvo menn í OK Market í Valshverfinu í Reykjavík í mars á þessu ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×