Íslenski boltinn

„Það vita þetta allir í liðinu að hann er sterkastur þarna“

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Viktor Jónsson dansaði þegar fernan var í höfn.
Viktor Jónsson dansaði þegar fernan var í höfn. Stöð 2 Sport

Viktor Jónsson skoraði fernu í sigri Skagamanna á HK í síðasta leik og er markahæsti leikmaður Bestu deildar karla með tólf mörk í fyrstu þrettán umferðunum. Stúkan ræddi frammistöðu Viktors og fór yfir mörkin hans á tímabilinu.

„Viktor Jónsson er stjarna liðsins og það þarf ekkert að deila um það. Maðurinn er sjóðandi og gerði að sjálfsögðu fjögur mörk í þessum leik,“ sagði Guðmundur Benediktsson, umsjónarmaður Stúkunnar í upphaf umræðunnar um Viktor.

„Gæinn sem margir töluðu um fyrir mót af því að hann hafði ekki skorað að neinu ráði í efstu deild fram að þessu móti. Þess voru einhverjir að fullyrða það að hann gæti það ekki,“ sagði Guðmundur.

Viktor hefur heldur betur breytt umræðunni um sig og þeim kenningum að hann geti ekki skorað í Bestu deildinni.

Búið að kveikja á honum

„Hann kominn með sjö mörk bara á móti HK í sumar,“ sagði Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur í Stúkunni.

„Hann er kominn með 31 mark í efstu deild og tólf af þeim komu í sumar. Það er búið að kveikja á honum. Þetta hefur ekki alveg dottið fyrir hann og hann hefur líka verið að glíma við meiðsli,“ sagði Albert.

Viktor Jónsson skoraði sjö mörk á móti HK í sumar.Vísir/Anton Brink

Albert er á því að þrenna hans á móti HK í fyrri umferðinni hafi kveikt almennilega á honum.

Hjálpar það að hafa skorað yfir tuttugu í Lengjunni?

„Hann hefur skorað 22 mörk í Lengjudeildinni og 21 mark í Lengjudeildinni. Hjálpar það í að reyna að ná þessu markameti að hann hafi í raun skorað fleiri mörk á einu tímabili þótt það sé ekki í þessari deild,“ spurði Baldur Sigurðsson, sérfræðingur í Stúkunni.

„Ég myndi halda það,“ sagði Guðmundur. Markametið er nítján mörk og vantar Viktori bara sjö mörk til að jafna það. ÍA á fjórtán leiki eftir á Íslandsmótinu.

„Styrkleiki hans er fyrir mér að fá fyrirgjafir. Hann er ofboðslega sterkur í loftinu og inn í teignum. Mér finnst eins og Jón Þór [Hauksson, þjálfari ÍA] hreinlega bara setji leikina upp þannig,“ sagði Guðmundur.

Fær góða þjónustu

„Johannes Vall veit af þessu, Jón Gísli [Gíslason] veit af þessu. Það vita þetta allir í liðinu að hann er sterkastur þarna og það er verið að fæða hann,“ sagði Guðmundur.

Það má sjá alla umræðuna um Viktor hér fyrir neðan.

Klippa: Stúkan ræðir heitasta sóknarmann Bestu deildarinnar



Fleiri fréttir

Sjá meira


×