Erlent

Ís­lendingar styrkja varnir kvenna í Úkraínu

Heimir Már Pétursson skrifar
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra með Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna í gærkvöldi á fundi sem Blinken boðaði til um konur, frið og öryggi.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra með Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna í gærkvöldi á fundi sem Blinken boðaði til um konur, frið og öryggi. AP/Stephanie Scarbrough

Utanríkisráðherra greindi frá sjötíu og fimm milljón króna framlagi Íslands á leiðtogafundi NATO í gærkvöldi, til að efla búnað kvenna á víglínunni í varnarbaráttu Úkraínu gegn innrás Rússa. Konur gegndu mikilvægu hlutverki í stríðinu og áríðandi að hlusta eftir röddum þeirra á þeirra eigin forsendum.

Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu er mættur til Washington. Á fundi með fréttamönnum í gær sagði hann Úkraínumenn ekki geta beðið eftir ákvörðunum Bandaríkjanna um framtíðarstuðning fram yfir forsetakosningar í Bandaríkjunum í nóvember.AP/Jose Luis Magana

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir utanríkisráðherra ræddu stöðu og hlutverk kvenna í að tryggja frið og öryggi í heiminum á viðburði sem Antony Blinken utanríkisráðherra Bandaríkjanna boðaði til á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Washington í gærkvöldi. Hún sagði mikilvægt að nýta krafta kvenna til að efla hagvöxt, hernaðarfælingu og varnir. Í þeim efnum gæti umheimurinn lært mikið af Úkraínumönnum.

„Úkraínskar konur eru á víglínunni í þessu stríði og gegna þar vaxandi hlutverki. Framlag þeirra er mikilvægt í vörnum Úkraínu í dag og á morgun og styrkir þrek Úkraínu til að komast af. Þær leiða mannúðaraðstoð, gegna mikilvægum störfum í stjórnsýslunni og rödd þeirra gegnir lykilhlutverki í samfélaginu,"“ sagði Þórdís Kolbrún

Það væri mikilvægt að hlusta á konur í Úkraínu og styðja þær á þeirra eigin forsendum.

Bjarni Benediktsson í hópi nokkurra leiðtoga NATO ríkja í hefðbundinni "fjölskyldumyndatöku" af leiðtogunum í gærkvöldi.AP/Adrian Wyld

„Þess vegna er mér ljúft að greina frá hálfrar milljónar evra (75 milljón króna) framlagi Íslands í CAP-sjóðinn til að greiða fyrir mikilvægan líkamlegan varnarbúnað fyrir konur, einkennisbúninga og skó. Það er mikilvægt að þær hafi aðgang að nauðsynlegum vörnum sem einnig hjálpar til við að nútímavæða úkraínska heraflann,“" sagði utanríkisráðherra í ávarpi sínu þegar hún greindi frá 75 milljón króna framlagi Íslands í styrktarsjóð NATO fyrir Úkraínu.

Leiðtogafundinum sem hófst með 75 ára hátíðardagskrá í gærkvöldi, verður framhaldið í dag og á morgun. Í hátíðarávarpi sínu greindi Joe Biden forseti Bandaríkjanna frá 40 milljarða dollara viðbótarframlagi NATO ríkja til að efla varnir Úkraínu.

Joe Biden forseti Bandaríkjanna sæmdi Jens Stoltenberg fráfarandi framkvæmdastjóra NATO forsetaorðunni Medal of Freedom í gærkvöldi. Það er æðsta orða sem forseti Bandaríkjanna veitir.AP/Evan Vucci

Fyrsti almenni fundur leiðtoganna þar sem framtíðaruppbygging NATO verður rædd hefst klukkan fimm að íslenskum tíma í dag. Á morgun funda leiðtogarnir með Volodymyr Zelensky forseta Úkraínu. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra situr fundi leiðtoganna og Þórdís Kolbrún situr fundi með utanríkis- og varnarmálaráðherrum.


Tengdar fréttir

Biden heitir Úkraínu nýjum loftvarnarkerfum

Joe Biden Bandaríkjaforseti tilkynnti í ræðu sinni í tilefni af 75 ára afmælis Atlantshafsbandalagsins að Bandaríkin myndu í samstarfi við aðrar bandalagsþjóðir sjá Úkraínumönnum fyrir fimm loftvarnarkerfum.

Atlantshafsbandalagið heldur upp á 75 ára afmæli

Leiðtogar Atlantshafsbandalagsríkjanna koma saman á fundi í Washington. Fundurinn markar 75 ár frá stofnun bandalagsins, auk þess sem hann verður sá síðasti í tíð Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóra.

Eldflaugin greinilega úr rússnesku vopnabúri

Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri.

Allra augu á Biden og bein útsending úr loftbelg

Alþjóðasamfélagið er slegið vegna mannskæðrar árásar Rússa á barnaspítala í Kænugarði, sem lýst hefur verið sem stríðsglæp. Rússar þræta fyrir ábyrgð en sérfræðingar segja sprengjuna úr rússnesku vopnabúri. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×