Fótbolti

Heimir tekur við írska lands­liðinu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Heimir Hallgrímsson er nýr þjálfari írska landsliðsins.
Heimir Hallgrímsson er nýr þjálfari írska landsliðsins. getty/Stephen McCarthy

Heimir Hallgrímsson hefur verið ráðinn þjálfari írska karlalandsliðsins í fótbolta. Hann stýrir Írum í Þjóðadeildinni og undankeppni HM 2026.

Heimir hætti sem þjálfari jamaíska landsliðsins eftir að það féll úr leik í Suður-Ameríkukeppninni á dögunum. Hann er nú tekinn við Írlandi.

Eyjamaðurinn tekur við starfinu af Stephen Kenny sem hætti með írska landsliðið síðasta haust. Síðan hafa Írar verið í þjálfaraleit en henni er nú lokið.

Heimir stýrir Írlandi í fyrsta sinn í tveimur leikjum gegn Englandi og Grikklandi í Dublin í Þjóðadeildinni í september. Auk þeirra er Finnland í riðli 2.

Heimir var aðstoðarmaður Lars Lagerbäck með íslenska landsliðið á árunum 2011-13 og stýrði því svo með honum til 2016. Undir þeirra stjórn komst íslenska liðið alla leið í átta liða úrslit á EM 2016. Eftir mótið tók Heimir einn við íslenska liðinu og kom því á HM 2018. Þar komst Ísland ekki upp úr riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×