Fótbolti

Vals­menn senda frá sér yfir­lýsingu: UEFA lítur málið al­var­legum augum

Valur Páll Eiríksson skrifar
Valsmenn fagna öðru marka sinna í gær.
Valsmenn fagna öðru marka sinna í gær. Vísir/Anton Brink

Valur hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna óláta áhorfenda á leik karlaliðs félagsins í fótbolta við Vllaznia frá Albaníu í Sambandsdeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld. Hegðun stuðningsmanna er fordæmd en öll einbeiting sögð á síðari leiknum eftir viku.

Öryggisdeild UEFA hefur verið í sambandi við fulltrúa Vals vegna málsins samkvæmt yfirlýsingunni. Málið sé litið alvarlegum augum innan sambandsins.

Auk þess hafa Valsmenn átt samtöl við fulltrúa KSÍ og Ríkislögreglustjóra vegna atburða gærkvöldsins.

Samkvæmt heimildum Vísis eru Valsmenn ekki spenntir fyrir því að halda út til Albaníu eftir það sem gekk á og líflátshótanir sem stjórnarmönnum, starfsfólki og leikmönnum liðsins bárust á leiknum í gær.

Stjórnarmenn og stuðningsmenn Vllaznia létu öllum illum látum þar sem dómari leiksins fékk að finna fyrir því, sem og öryggisvörður á leiknum, sem var laminn í andlitið.

Nánar má lesa um málið hér.

Yfirlýsingu Vals má lesa í heild sinni að neðan

Yfirlýsing vegna leiks Vals og K.F. Vllaznia

Líkt og fram hefur komið í fjölmiðlum urðu uppákomur eftir leik Vals og K.F. Vllaznia í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu á Hlíðarenda í gær.

Knattspyrnufélagið Valur fordæmir hegðun sem þessa sem á auðvitað ekkert skylt við fótbolta.

Valur vill jafnframt taka fram að málið hefur verið tilkynnt til UEFA og hefur öryggisdeild sambandsins verið í sambandi við forsvarsmenn okkar í morgun. Okkur hefur verið tjáð að málið sé nú til umfjöllunar þar og sé litið alvarlegum augum. Við bíðum svara.

Þá hefur KSÍ verið upplýst um málið og boðið fram aðstoð sína auk þess sem við höfum verið í sambandi við Ríkislögreglustjóra vegna málsins.

Allur fókus okkar Valsmanna er á seinni leikinn sem fer fram í Albaníu þann 18. júlí n.k. Þann leik ætlum við að vinna og fara áfram í næstu umferð keppninnar.

Við lítum sem svo á að málið sé komið í réttan farveg og munum ekki tjá okkur frekar um málið.

f.h. Knattspyrnufélagsins Vals

Styrmir Þór Bragason, framkvæmdastjóri




Fleiri fréttir

Sjá meira


×