Innlent

Stappað á tjald­svæðum og vörur hverfa úr hillum

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Egilsstaðir. Mynd úr safni.
Egilsstaðir. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm

Mikið blíðviðri er á Austurlandi í dag en snemma í morgun mældist hitastig á þó nokkrum stöðum um 20 gráður. Tjaldsvæði fyrir austan hafa verið fljót að fyllast en að sögn staðarhaldara komast færri að en vilja. Svo virðist sem fólk streymi hreinlega austur frá öllum landshlutum. 

Tjaldsvæðin á Austurlandi hafa heldur betur fundið fyrir aukinni eftirspurn vegna blíðviðrisins í dag og síðustu daga. Heiður Vigfúsdóttir, sem rekur tjaldsvæðið á Egilsstöðum, segir í samtali við fréttastofu að ýmsar vörur í matvörubúðum séu fljótar að hverfa úr hillunum.

„Það er töluverð traffík hérna og maður sér það líka á vöruúrvali í matvörubúðum. Það virðist vera að flestir séu að stefna akkúrat hingað til okkar. Það sést alveg á búðunum inn á milli á meðan þeir reyna eftir bestu getu að fylla á.“

Uppbókað á svæðinu

Hún segir að fólk streymi að úr öllum áttum til að fá tækifæri til að njóta blíðunnar á Austurlandi. Bókanlega svæðið á tjaldsvæðinu sé að mestu fullt út helgina og inn í næstu viku en hún bendir á að það er annað svæði þar sem reglan um fyrstur kemur fyrstur fær ræður ríkjum og að þar sé oft möguleiki að ná tjaldstæði.

„Við reynum að taka á móti sem allra flestum þannig að allir Íslendingar geti fyllt vel á D-vítamín skammtinn og hlýjað sér hérna hjá okkur.“

Vildi ekki segja hvar væri pláss

Jón Magnússon, eigandi Camp East sem rekur sjö tjaldsvæði á Austfjörðum, sagði í samtali við fréttastofu að það væri brjálað að gera á öllum stöðunum. Tjaldsvæði Camp East eru í Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði, Stöðvarfirði, Breiðdalsvík og Fossárdal.

Uppbókað er alls staðar að undanskildu einu tjaldsvæði en hann sagðist ekki vilja gefa upp hvaða tjaldsvæði væri enn með pláss til að forðast það að fólk myndi flykkjast að og mannmergð myndi safnast saman á svæðinu. Sömu sögu er að segja af flest öllum tjaldsvæðum á Austurlandi.

„Inn í Fljótsdalsgrund var eitthvað að losna og átti eitthvað að losna með morgninum. Annað var meira og minna fullt síðastliðna nótt,“ sagði Heiður spurð hvernig ástandið væri á öðrum tjaldsvæðum á Austurlandi




Fleiri fréttir

Sjá meira


×