Lífið

Shannen Doherty látin

Jón Þór Stefánsson skrifar
Shannen Doherty gerði garðinn frægan sem Brenda Walsh í Beverly Hills 90210
Shannen Doherty gerði garðinn frægan sem Brenda Walsh í Beverly Hills 90210 Getty

Bandaríska leikkonann Shannen Doherty, sem lék í sjónvarpsþáttunum vinsælu Beverly Hills, 90210 er látin 53 ára að aldri.

Doherty greindist með brjóstakrabbamein árið 2015.

„Það er mér þungbært að staðfesta andlát leikkonunnar Shannen Doherty. Laugardaginn 13. júlí tapaði hún í bardaganum við krabbamein eftir margra ára baráttu,“ sagði umboðsmaður Doherty í samtali við People.

Shannen Doherty gerði garðinn frægan sem Brenda Walsh í Beverly Hills, 90210 og Prue Halliwell í Charmed.

Krakkarnir úr Beverly Hills, 90210. Frá hægri: Ian Ziering, Tori Spelling, Shannen Doherty, Brian Austin Green, Jason Priestley, Jennie Garth, Gabrielle Carteris og Luke Perry.Getty





Fleiri fréttir

Sjá meira


×